Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lausnin felst í gagnkvæmri virðingu

Read Full Article →

Sólrún Tinna Eggertsdóttir, rekstrarstjóri Hamborgarabúllu Tómasar í Kødbyen til 10 ára, lýsir gjörólíku viðskiptaumhverfi fyrir eigendur veitingastaða í Kaupmannahöfn en því sem veitingaeigendur í Reykjavík búa við. Hún segir í samtali við Viðskiptablaðið að gagnkvæm virðing ríki á milli rekstraraðila og eftirlitsstofnana í borginni og telur það vera lykilatriði í velgengni innan veitingageirans. Mikil umræða hefur myndast undanfarna daga um rekstrarumhverfi veitingastaða í miðborg Reykjavíkur, meðal annars þegar kemur að aðgengi og vöruafhendingum. Veitingaeigendur hafa til að mynda kvartað undan bílastæðasektum sem starfsmenn þeirra hafa fengið fyrir það eitt að skutlast með fáeinar vörur sem eru nauðsynlegar fyrir reksturinn. Viðskiptablaðið greindi fyrst frá því í vikunni að reglugerðir í Kaupmannahöfn þegar kemur að skammtímavöruafhendingum séu allt öðruvísi en þær sem eru við lýði í Reykjavík. Sjá einnig Gagn­rýnir full­yrðingar Bjarna um vöru­af­hendingar Í Kaupmannahöfn eru vöruafhendingar aðeins leyfðar til kl. 11:00 og suma daga til kl. 09:00 en þær reglur eiga þó aðeins við stærri sendiferðabíla sem mæta með pallettur. Þegar kemur að minni bílasendingum eru reglurnar mun sveigjanlegri. Gjörólíkar bílastæðastefnur Sólrún segir að á þeim tíu árum sem hún hefur rekið Hamborgarabúlluna í Kaupmannahöfn hafi hún aldrei kannast við að nokkur starfsmaður, hvorki á vegum fyrirtækisins né á vegum sendlaþjónustu, hafi nokkurn tímann fengið sekt. „Sama reglan gildir í miðborg Kaupmannahafnar og hérna í Kødbyen þar sem þú mátt leggja þar sem er gul lína til að sækja eða afhenda vöru svo lengi sem bíllinn er virkur og það er kveikt á honum. Það er sagt að viðmiðið sé 3 til 5 mínútur en það segir enginn neitt ef þú ert lagður í 10 mínútur.“ Sjá einnig Meðal bestu hamborgara í Evrópu Hún segir að bílastæðareglurnar í Kaupmannahöfn séu mjög skýrar og að þær séu með allt öðru móti en hún kannist við í Reykjavík. „Ég hef fengið tvær sektir í miðbænum þegar ég hef komið til Íslands og fengið lánaðan bíl. Aftur á móti borgaði ég í stöðumælinn en ég hef þá bara óvart borgað í vitlaust stæði eða hef misskilið eitthvað. Þetta atriði úr áramótaskaupinu var með þetta mál alveg á hreinu.“ Hvað varðar skipulagsmál telur Sólrún að Reykjavíkurborg eigi það stundum til að taka ákvarðanir án þess að hafa unnið heimavinnuna og að oft sé ráðist í verkefni án þess að hafa fullan skilning á afleiðingunum. „Allt lítur vel út á pappír en svo virkar kannski ekki áætlunin fyrir borgarbúana og rekstraraðilana sem áætlunin bitnar mest á. Ef þú ert með eitthvað fyrirtæki yfir höfuð þá verður þú að vera með aðgengi fyrir aðra en bara viðskiptavini til að geta selt vöruna.“ Aðstoðin við rekstur til fyrirmyndar Sólrún lýsir einnig mjög jákvæðri reynslu þegar kemur að því að hefja rekstur í Kaupmannahöfn. Þó svo að Danir hleypi ekki hverjum sem er inn á markaðinn þá segir hún að það sé hægt að ná mjög langt ef tungumálakunnáttan og pappírarnir eru í lagi. Sjá einnig Borgarfulltrúar opnir fyrir notkun dróna Veitingastaðir fá til að mynda að opna á undan úttekt heilbrigðisyfirvalda svo lengi sem þeir uppfylli ákveðnar kröfur. Eftirlitið mætir síðan eftir opnun og ef allt er með felldu þá fær veitingastaðurinn að keyra áfram með fulla starfsemi. Fyrir utan reksturinn í Kødbyen tekur Búllan einnig þátt í stórum viðburðum og hátíðum á hverju ári. © Samsett (SAMSETT) „Í okkar tilfelli þá komu þeir viku eftir að við opnuðum Búlluna. Þá mættu bara tveir starfsmenn heilbrigðiseftirlitsins og skoðuðu staðinn. Síðan fengum við bara grænan broskall í gluggann og allt var í góðu.“ Hún segist aldrei hafa haft neitt slæmt um heilbrigðisyfirvöld í Kaupmannahöfn að segja en sjálf passar Sólrún vel upp á að fara eftir öllum reglugerðum. „Borgaryfirvöld virða okkur því þeir vilja hafa okkur og við viljum virða þeirra skipulag svo að allir geti komist fyrir.“ „Þeir eru líka rosalega góðir í að ræða hlutina. Ef þeir koma og það er kannski eitthvað sem ég skil ekki þá útskýra þeir málið fyrir mér eða sýna mér og við finnum einhvern milliveg í stað þess að þeir segi bara nei og loki staðnum.“ Sjá einnig Taktu Nótu: Bragð af Georgíu í Köben Sólrún minnist til dæmis á fyrirskipun sem hún fékk frá yfirvöldum þar sem Hamborgarbúllan var beðin um að fjarlægja nokkra bekki sem sátu fyrir utan staðinn. Hún hafði þá verið í fríi og sá ekki tölvupóstinn fyrr en viku seinna. „Ég svaraði bara um leið og ég sagði að ég myndi fjarlægja bekkina og þá var það bara búið mál. Við höfum eins verið með afmælisveislur og útiveislur en við sóttum bara um leyfi og það var enginn sem kom og stóð yfir okkur.“ Hún segir að það sama gildi um sendla í borginni en Hamborgarabúllan notast við Wolt og fá allir sendlar að leggja beint fyrir utan veitingastaðinn við gulu línuna til að sækja matinn, rétt eins og þeir sem mæta með tómata eða ost. „Það sem skiptir máli er þessi gagnkvæma virðing. Borgaryfirvöld virða okkur því þeir vilja hafa okkur og við viljum virða þeirra skipulag svo að allir geti komist fyrir. Það er mikið svigrúm í báðar áttir og mér finnst það svo ótrúlega jákvætt.“

Share this article