Innlent | mbl | 11.5.2026 | 20:10 Gagnaleki úr Ráðhúsinu til rannsóknar Frá borgarstjórnarfundi. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Regluvörður Reykjavíkurborgar hefur upplýst borgarráð um alvarlegan gagnaleka varðandi birtingu ársreiknings Reykjavíkurborgar. Hefur gagnalekinn jafnframt verið tilkynntur til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar og endurskoðunarnefndar. Í bréfi frá regluverði Reykjavíkurborgar, Ólöfu Marín Úlfarsdóttur, til borgarráðs er borgarráð upplýst um gagnalekann sem varð þann 27. apríl og tengist frétt sem birtist á mbl.is klukkan 13:30 með öllum helstu upplýsingum og lykiltölum um ársreikning Reykjavíkurborgar. „Atvik voru með þeim hætti að fundur borgarráðs mánudaginn 27. apríl sl. varð lengri en upphaflega var áætlað og var ákveðið að fresta birtingu ársreikningsins þar til eftir að fundi lyki eða til kl. 13.30. Var birting í Kauphöll tímastillt af regluverði svo að ársreikningurinn birtist kl. 13.30 að staðartíma. Vitneskja um tímasetningu birtingar í Kauphöll var ekki öðrum kunn en þeim er sátu fundinn, auk regluvarðar. Gögnin voru lögð fyrir fundamenn með trúnaðarmerkingu, líkt og venja er, en einnig lá fyrir trúnaðarbréf frá fjármálastjóra Reykjavíkurborgar til borgarfulltrúa og áheyrnarfulltrúa þar sem ítrekað var að gögnin væru trúnaðarmál og að sá trúnaður skyldi haldast fram að opinberri birtingu þeirra. Það liggur því fyrir að um ólögmæta miðlun upplýsinga var að ræða til Morgunblaðsins, enda birtist frétt mbl.is, þar sem þegar var búið að vinna úr ársreikningnum, á sömu mínútu og ársreikningurinn var birtur í Kauphöll, eða nákvæmlega kl. 13:30,“ segir í bréfinu. Frétt af mbl.is Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða Refsiverð háttsemi Kemur þar aukinheldur fram að ársreikningur Reykjavíkurborgar, ásamt fylgigögnum, sé bundinn lögmætri trúnaðarskyldu og séu auk þess innherjaupplýsingar þar sem Reykjavíkurborg gefi út skuldabréf á skipulögðum verðbréfamarkaði. Þá sé ólögmæt miðlun innherjaupplýsinga til þriðja aðila utan starfsskyldna, s.s. blaðamanns, refsiverð. „Leki á fjárhagsgögnum eru markaðssvik sem grafa undan trausti á fjármálakerfinu og eru alvarlegt brot á siðareglum. Hefur framangreint atvik verið tilkynnt til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar og endurskoðunarnefndar. Er það lagt í þeirra hendur að bregðast við með viðeigandi hætti.“ Heimila eftirlitsaðilum fullan aðgang að tölvusamskiptum Í fundargerð frá borgarráðsfundi þann 7. maí síðastliðinn kemur fram að bréfið hafi þar verið lagt fram. Í bókun sem lögð var fram af meirihlutanum kemur fram að fulltrúar meirihlutans lýsi sig reiðubúna til að heimila eftirlitsaðilum fullan aðgang að sínum tölvusamskiptum í tengslum við rannsókn málsins. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Njarðvík - Haukar, staðan er 42:42 Tottenham - Leeds, staðan er 1:0 Gagnaleki úr Ráðhúsinu til rannsóknar Ráðinn til starfa í Mosfellsbæ Torkennileg íkveikjumál í Noregi Umræðan Ábyrg fjármálastjórn Viðurkennum vandann Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þungt högg og fjárfestingar í hættu Rúmeninn keypti bíl og stakk af með Norrænu Ætlar að sanna sig fyrir efasemdarmönnum 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Jörð skelfur við Ok Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara Þórdís Ólöf bar sigur úr býtum í Bakgarðshlaupinu 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Ekki leið en í sjokki „Fari alltaf einhverjar sögur af stað“ Handtekinn með þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Segir vændismansal stærsta vandamálið Gott að fá vorhretið snemma í ár Vöggustofubygging verði rifin Tveir unnu 520 þúsund krónur Líkt var eftir að farþegaþota hefði farist Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Nýjast á mbl.is » Njarðvík - Haukar, staðan er 42:42 Tottenham - Leeds, staðan er 1:0 Gagnaleki úr Ráðhúsinu til rannsóknar Ráðinn til starfa í Mosfellsbæ Torkennileg íkveikjumál í Noregi Umræðan Ábyrg fjármálastjórn Viðurkennum vandann Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ætlar að sanna sig fyrir efasemdarmönnum Talið í Breiðholti vegna tónleika Herra Hnetusmjörs Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Jörð skelfur við Ok Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara Þórdís Ólöf bar sigur úr býtum í Bakgarðshlaupinu 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Ekki leið en í sjokki „Fari alltaf einhverjar sögur af stað“ Handtekinn með þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Segir vændismansal stærsta vandamálið Gott að fá vorhretið snemma í ár Vöggustofubygging verði rifin Tveir unnu 520 þúsund krónur Líkt var eftir að farþegaþota hefði farist Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið