Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Viðbragð óásættanlegt en betri tíð í vændum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 25.2.2026 | 6:00 Viðbragð óásættanlegt en betri tíð í vændum Umræða hefur skapast um viðbragð eftir atburði helgarinnar. mbl.is/Anton Brink Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Viðbragðstími slökkviliðs í efri byggðum Kópavogs er óásættanlegur að mati Birgis Finnssonar, starfandi slökkviliðsstjóra á höfuðborgarsvæðinu. Umræða hefur skapast um starfsaðstæður slökkviliðs eftir sinubrunann við Elliðavatn á sunnudag. Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, vakti athygli á því í aðsendri grein á Vísi á mánudag að viðbragðstími slökkviliðs í efri byggðum Kópavogs væri 15-19 mínútur og sagði að sú staða væri óviðunandi. Birgir segir við Morgunblaðið að unnið hafi verið að framtíðarskipulagi lengi. Skýrsla sem unnin var 2022-2023 og eldri gögn sýni það. Hann segir að ný slökkvistöð við Tónahvarf í Kópavogi verði tekin í notkun í síðasta lagi árið 2030. Stöðin sé hluti af framtíðaruppbyggingu sem samþykkt hafi verið í stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og af öllum sveitarfélögum. Fjölga um eina stöð „Það hefur legið fyrir í dágóðan tíma að það þyrfti að bæta viðbragðstímann í efri byggðum Kópavogs. Upphaflega stóð jafnvel til að loka slökkvistöðinni við Tunguháls en niðurstaðan varð að við myndum fjölga um eina stöð með Tónahvarfinu til að tryggja sem bestan viðbragðstíma.“ Fleira er í bígerð til að bæta viðbragðstíma slökkviliðs að sögn Birgis. Lóð er frátekin út við Krýsvíkurveg í Hafnarfirði þar sem ný stöð á í framtíðinni að sinna Völlunum, Hamranesinu og Skarðshlíð. Þá er unnið að því að bæta viðbragðstíma slökkviliðs á Seltjarnarnesi. Greint var frá því í Morgunblaðinu haustið 2024 að stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hefði falið Þór Sigurgeirssyni, bæjarstjóra á Seltjarnarnesi, og Jóni Viðari Matthíassyni slökkviliðsstjóra að finna hentugt húsnæði fyrir útkallseiningu fyrir sjúkrabíl á Seltjarnarnesi á álagstímum í umferð. Enn hefur engin niðurstaða fengist í málið. Bæjarstjórinn sagði fyrir rúmu einu og hálfu ári að viðbragð sjúkrabíla væri ekki ásættanlegt fyrir vestasta hluta Reykjavíkur og Seltjarnarnes. Allt að 12 mínútur hefði tekið sjúkrabíla að komast á staðinn en viðmiðið er samkvæmt brunavarnaáætlun 7,5 mínútur. Í áðurnefndri grein Jónasar segir að undirbúningur framkvæmda við Tónahvarf hafi staðið í stað í eitt og hálft ár vegna kröfu Kópavogsbæjar um greiðslu byggingarréttargjalds. Birgir segir að auðvitað komi upp í stjórn slökkviliðsins umræða um lóðir og kostnað en hafnar því að Kópavogsbær standi í vegi fyrir uppbyggingunni. Vilja fá stærri lóð „Það hefur alltaf staðið til að við fengjum lóð í Kópavogi. Áhugi okkar hefur hins vegar staðið til þess að fá stærri lóð, meðal annars vegna hugmynda um að verkstæði slökkviliðsins yrði á þeirri stöð. Staðan er sú að við erum með lóð og planið er samkvæmt áætlun að stöðin verði klár ekki síðar en 2030. Spurningin er bara hvort það verði meiri starfsemi af hálfu slökkviliðsins þar.“ Birgir Finnsson Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Víða snjókoma eða él Þrjár stúlkur réðust á eina Viðbragð óásættanlegt en betri tíð í vændum Stelpur látnar sofa á dýnum á ganginum Fangavörður grunaður um brot í starfi Umræðan Að banka á brennandi dyr ESB Mótun manneskjumiðaðrar gervigreindar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fangavörður grunaður um brot í starfi Viðbragð óásættanlegt en betri tíð í vændum Myndir: Grandaborg opnuð eftir 1.240 daga bið Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Mest lesið Í gær Í vikunni Sjö gámar fara frá Íslandi í vikunni Vegagerðin varar við vetrarfærð Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Vantrauststillagan krafs í bakkann Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Fylgi Miðflokksins lækkar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Grapevine í kröggum „Yfirþyrmandi að vera hérna annað skiptið í röð“ Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Nýjast á mbl.is » Víða snjókoma eða él Þrjár stúlkur réðust á eina Viðbragð óásættanlegt en betri tíð í vændum Stelpur látnar sofa á dýnum á ganginum Fangavörður grunaður um brot í starfi Umræðan Að banka á brennandi dyr ESB Mótun manneskjumiðaðrar gervigreindar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gekk fram á lík sonar síns við útidyrnar Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Grapevine í kröggum Kristrún: Skiptir máli að við stöndum með Úkraínu Mest lesið Í gær Í vikunni Sjö gámar fara frá Íslandi í vikunni Vegagerðin varar við vetrarfærð Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Vantrauststillagan krafs í bakkann Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Fylgi Miðflokksins lækkar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Grapevine í kröggum „Yfirþyrmandi að vera hérna annað skiptið í röð“ Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu

Share this article