Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kyrrsetja 66 skip vegna vanhæfs skoðunarmanns

Read Full Article →

Skoðanir á gúmmíbjörgunarbátum sem einn þjónustuaðili framkvæmdi árið 2025 hafa verið ógiltar. Ákvörðunin byggir að sögn Samgöngustofu á frávikum sem komu í ljós við nýlega úttekt. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samgöngustofu þar sem segir að ógildingin nái til alls 87 gúmmíbjörgunarbáta á 66 skipum. Af þeim hafi tólf verið á sjó að undanförnu. Þessi skip hafa því verið kyrrsett þar til fullnægjandi skoðun hefur farið fram. Starfsmaður án viðurkenningar frá framleiðenda Þórhildur Elín Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu. Mynd/Samgöngustofa Þórhildur Elín Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu, segir við Fiskifréttir að skoðanir þessara gúmmíbjörgunarbáta hafi verið ógiltar þar sem þær hafi verið gerðar af starfsmanni sem ekki uppfyllti skilyrði starfsleyfis um viðurkenningu frá framleiðenda bátanna. „Það skiptir máli að sá sem skoðar sé búinn að fara á námskeið og sé metinn hæfur af framleiðanda björgunarbúnaðarins til þess að starfsleyfið frá Samgöngustofu sé í gildi,“ segir Þórhildur. Um að ræða varúðarráðstöfun Þennan tiltekna þjónustuaðila segir Þórhildur vera með starfsstöðvar á tveimur stöðum á landinu og að þetta eigi við um skoðanir á annarri þeirra. Í september í fyrra hafi í fyrsta sinn verið gerð afturköllun af þessu tagi og nún þá náð til 122 báta. „Skipin geta ekki verið með haffæri nema hafa gilda skoðun á gúmmíbjörgunarbátum,“ bendir Þórhildur á. Um sé að ræða varúðarráðstöfun þar sem ekki sé hægt að tryggja á bátarnir hafi verið rétt skoðaðir. Ókeypis endurskoðun fyrir vorið Til þess að komast aftur á sjó þarf nú að skoða umrædda björgunarbáta eftir settum reglum. „Við komum til móts við þau skip sem þurfa að vera á sjó núna eins og við mögulega getum með því að þau fái lánaða báta annars staðar eða klári málin með öðrum hætti þannig að þetta sé öruggt,“ tekur Þórhildur fram. Í fyrrnefndri tilkynnningu Samgöngustofu er rakið að samkvæmt skipalögum teljist skipin 66 vera óhaffær þar til endurtekin skoðun á björgunarbátum þeirra hefur farið fram og staðfest að þeir uppfylli gildandi öryggiskröfur. Sú endurskoðun fari fram fyrir 1. maí í vor og verði útgerðum að kostnaðarlausu. Hertu eftirlit með skoðun gúmmíbjörgunarbáta í fyrrahaust „Útgerðir skipanna hafa þegar verið upplýstar og fengið leiðbeiningar um næstu skref. Aðgerðirnar eru liður í áframhaldandi vinnu Samgöngustofu við að styrkja eftirlit og tryggja að björgunarbúnaður uppfylli ávallt kröfur um öryggi sjófarenda,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að frá síðasta hausti hafi eftirlit með skoðun gúmmíbjörgunarbáta verið hert. „Meðal annars hefur samstarf við þjónustuaðila verið þétt með föstum fundum, sérstakar leiðbeiningar útbúnar, skoðunarhandbók uppfærð og sérfræðingur frá framleiðanda björgunarbátanna fenginn til liðsinnis við skoðanir á vettvangi. Aukin upplýsingagjöf og fræðsla fyrir útgerðir er í undirbúningi. Öryggisvinna er stöðugt ferli og verður áfram í forgangi,“ segir Samgöngustofa.

Share this article