Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
LOW News Mbl Innlent

Fleiri sigldu með ótrygga björgunarbáta

  • What: Investigation into faulty safety equipment on rescue boats
  • Impact: Potential risk to marine safety
Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 30.4.2026 | 10:35 Fleiri sigldu með ótrygga björgunarbáta Sleppibúnaður gúmmíbjörgunarbáts virkaði ekki þegar Ormurinn langi sökk en hann virkjaðist þegar báturinn var hífður af hafsbotni. Björgunarbáturinn blés hins vegar ekki út því búnaðurinn var í ólagi. Ljósmynd/Landhelgisgæslan Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Nýútgefin skýrsla Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA) um banaslys sem varð þegar strandveiðibáturinn Ormurinn langi sökk við mynni Patreksfjarðar síðasta sumar leiðir margt athugavert í ljós. Athygli vekur að tveir og hálfur mánuður liðu frá slysinu og áður en gúmmíbjörgunarbátar sem þjónustaðir voru af sama þjónustuaðila voru innkallaðir. Við úttekt reyndust margir þeirra í ólagi. Samgöngustofa segist strax hafa ráðist í aðgerðir. Skoðunum og eftirliti ábótavant Tekið er fram í skýrslunni að Samgöngustofu hafi 2. júlí borist tilkynning frá RNSA um að „mikið frávik hefði verið á virkni gúmmíbjörgunarbátsins sem var um borð í Orminum langa og að sjósleppiloki (HRU) hefði ekki virkað eðlilega.“ Frétt af mbl.is Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Gúmmíbjörgunarbátar sem þjónustaðir voru af Skipavík voru þó ekki innkallaðir fyrr en tveimur og hálfum mánuði síðar, eða 18. september. Því er ljóst að á því tímabili hafa margir bátar verið á sjó með ótrygga gúmmíbjörgunarbáta. Í skriflegu svari Samgöngustofu við fyrirspurn mbl.is um það hvers vegna svo langan tíma hafi tekið að bregðast við og innkalla gúmmíbjörgunarbátana segir að stofnunin hafi samstundist kallað eftir gögnum frá þjónustuaðilanum til að fá heildaryfirsýn yfir málið. Segir jafnframt í svarinu að gögn hafi borist um miðjan júlí en að á þeim tíma hafi RNSA óskað eftir trúnaði og það hafi takmarkað næstu skref gagnvart þjónustuaðilanum. „Þegar trúnaði var aflétt 22. júlí var þjónustuaðilanum samdægurs tilkynnt að ráðist yrði í úrtaksskoðanir,“ segir í svarinu en það leiddi til innköllunar gúmmíbjörgunarbáta sem Skipavík hafði yfirfarið. „Ákvarðanir Samgöngustofu í málinu byggðu á því að afla staðfestra gagna, virða trúnað á meðan rannsókn stóð yfir og tryggja að aðgerðir byggðu á traustum forsendum.“ Frétt af mbl.is Réðust í úttektina í kjölfar banaslyss í sumar Breyting á bát ekki tilkynnt Í skýrslunni er tekið fram að Orminum langa hafi á einhverjum tímapunkti verið breytt en kassa hafði verið bætt við skut bátsins svo hann lengdist um tæpan metra. Greining leiddi jafnframt í ljós að breytingin ógnaði stöðugleika bátsins en af vitnisburði sjónarvotts að dæma er talið líklegt að Ormurinn langi hafi fyrst sokkið að aftan þegar kassinn fylltist af sjó. ​Magnús Þór Hafsteinsson lést þegar bátur hans, Ormurinn langi, sökk við mynni Patreksfjarðar. mbl.is/Kristinn Magnússon Rannsakendur fundu þó engin gögn um það hvenær breytingin hafði verið framkvæmd né af hverjum og ljóst að hún var aldrei tilkynnt til Samgöngustofu. Þá gerði skoðunarstofa sem framkvæmdi árlegar skoðanir engar athugasemdir við aukna lengd bátsins. „Þetta sýnir mikilvægi þess að útgerðir, eigendur og skipasmíðastöðvar tilkynni og fái samþykktar breytingar á skipum eins og kveðið er á um í gildandi reglum. Rétt er að fram komi að báturinn var smíðaður árið 1981 eftir eldri smíðareglum sem gerðu mun minni kröfur en síðar varð,“ segir í svari stofnunarinnar. „Samgöngustofa telur því mikilvægt að skerpa á upplýsingagjöf um tilkynningarskyldu og efla fræðslu um atriði sem geta haft áhrif á öryggi skipa.“ Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa er sýnt hvernig skutkassinn bætti við lengd bátsins. Ljósmynd/Rannsóknarnefnd samgönguslysa Á ekki að fikta í hönnun skipa Jón Pétursson, rannsóknarstjóri siglingasviðs RNSA, segir í samtali við Morgunblaðið að gríðarlegt magn gagna liggi að baki rannsókninni, bæði skjalagögn og viðtöl. Aðspurður hvaða lærdóm sé brýnast að draga af slysinu segir hann það vera að bera virðingu fyrir björgunarbúnaði. „Björgunarbúnaður skiptir öllu máli þegar á honum þarf að halda og þá þarf hann að vera í lagi,“ segir Jón. „Hinn lærdómurinn sem hægt er að draga af þessu er sá að breytingar á fiskiskipum, hversu stór eða lítil sem þau eru, þurfa að vera rétt gerðar. Það á í rauninni ekkert að vera að fikta í hönnun skipa nema menn sem hafa þekkingu séu látnir meta hvort það sé í lagi. Það er kannski stóri lærdómurinn.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Landa síður afla í Vestmannaeyjum Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Íslenskur skötuselur sá eini með sjálfbærnivottun Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Lax á kókaíni syndir linnulaust Töf á viðræðum við Færeyjar Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Haldið af stað til síldarmælinga Veltihringrásin nálgast vendipunkt Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Íslenskur skötuselur sá eini með sjálfbærnivottun Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Tífalt dýrari en lax Haldið af stað til síldarmælinga Lax á kókaíni syndir linnulaust Töf á viðræðum við Færeyjar Veltihringrásin nálgast vendipunkt Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Veltihringrásin nálgast vendipunkt Lax á kókaíni syndir linnulaust Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Sjötugur og gerir út á eikarbát Gísli Jóns er núna Kristrún Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Ankeri opnar nýja skrifstofu í Singapúr Drógu aflvana bát til lands Fleira áhugavert Ætlar að þyngja refsingar fyrir vændiskaup „Allt hefur verið afbókað“ Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Tók speglasjálfu skömmu fyrir árásina Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 29.4.26 627,40 kr/kg Þorskur, slægður 29.4.26 856,57 kr/kg Ýsa, óslægð 29.4.26 472,18 kr/kg Ýsa, slægð 29.4.26 377,59 kr/kg Ufsi, óslægður 29.4.26 251,04 kr/kg Ufsi, slægður 29.4.26 287,79 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 29.4.26 443,27 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 26.4.26 45,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 30.4.26 Goði SU 62 Grásleppunet Grásleppa 468 kg Samtals 468 kg 30.4.26 Lizt ÍS 153 Handfæri Þorskur 159 kg Samtals 159 kg 30.4.26 Toni NS 20 Landbeitt lína Ýsa 1.175 kg Þorskur 1.139 kg Steinbítur 64 kg Hlýri 17 kg Keila 10 kg Skarkoli 1 kg Samtals 2.406 kg 30.4.26 Fannar SK 11 Grásleppunet Grásleppa 758 kg Ýsa 4 kg Skarkoli 4 kg Ufsi 2 kg Þykkvalúra 1 kg Samtals 769 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Landa síður afla í Vestmannaeyjum Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Íslenskur skötuselur sá eini með sjálfbærnivottun Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Lax á kókaíni syndir linnulaust Töf á viðræðum við Færeyjar Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Haldið af stað til síldarmælinga Veltihringrásin nálgast vendipunkt Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Íslenskur skötuselur sá eini með sjálfbærnivottun Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Tífalt dýrari en lax Haldið af stað til síldarmælinga Lax á kókaíni syndir linnulaust Töf á viðræðum við Færeyjar Veltihringrásin nálgast vendipunkt Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Veltihringrásin nálgast vendipunkt Lax á kókaíni syndir linnulaust Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Sjötugur og gerir út á eikarbát Gísli Jóns er núna Kristrún Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Ankeri opnar nýja skrifstofu í Singapúr Drógu aflvana bát til lands Fleira áhugavert Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Áhrif olíuverðhækkana koma þungt fram Láta undan suði og vilja fræðslu um klám Segir örorkubætur á sjálfstýringu Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 29.4.26 627,40 kr/kg Þorskur, slægður 29.4.26 856,57 kr/kg Ýsa, óslægð 29.4.26 472,18 kr/kg Ýsa, slægð 29.4.26 377,59 kr/kg Ufsi, óslægður 29.4.26 251,04 kr/kg Ufsi, slægður 29.4.26 287,79 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 29.4.26 443,27 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 26.4.26 45,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 30.4.26 Goði SU 62 Grásleppunet Grásleppa 468 kg Samtals 468 kg 30.4.26 Lizt ÍS 153 Handfæri Þorskur 159 kg Samtals 159 kg 30.4.26 Toni NS 20 Landbeitt lína Ýsa 1.175 kg Þorskur 1.139 kg Steinbítur 64 kg Hlýri 17 kg Keila 10 kg Skarkoli 1 kg Samtals 2.406 kg 30.4.26 Fannar SK 11 Grásleppunet Grásleppa 758 kg Ýsa 4 kg Skarkoli 4 kg Ufsi 2 kg Þykkvalúra 1 kg Samtals 769 kg Skoða allar landanir »

Share this article