Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ákæra menn í annað sinn fyrir að kveikja í bíl lögreglukonu

Read Full Article →

Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur þremur karlmönnum sem eru grunaðir um að hafa kveikt í bíl í ágúst 2023. Bíllinn var í eigu lögreglukonu og grunaði hana strax að íkveikjan tengdist störfum hennar. Þetta er í annað skipti sem héraðssaksóknari gefur út ákæru á hendur mönnunum þremur vegna sama brots. Fyrri ákæru var vísað frá dómi eftir að dómari komst að þeirri niðurstöðu að héraðssaksóknara hefði skort vald til að ákæra mennina fyrir eignaspjöll. Tveir ákærðu búa hér á landi en einn í Svíþjóð. Einn þeirra átti, samkvæmt ákæru, að fá 100 þúsund krónur fyrir íkveikjuna. Rannsókn á íkveikjunni sneri lengst af um brot gegn valdstjórninni vegna þess að kveikt var í bíl lögreglukonu, auk þess sem meint eignaspjöll voru rannsökuð. Í lokin var þó bara ákært fyrir eignaspjöll. Verjendur mannanna þriggja kröfðust þess í málflutningi sínum að ákærunni yrði vísað frá dómi og varð dómari við þeirri kröfu. Hann sagði að lögum samkvæmt hefði héraðssaksóknari ákæruvöld í vissum brotaflokkum og mætti þá einnig ákæra í öðrum málaflokkum. Það ætti þó ekki við í þessu máli því aðeins væri ákært fyrir eignaspjöll sem væri í verkahring lögreglustjóra að ákæra. Eina leiðin til að héraðssaksóknari gæti ákært fyrir svona brot væri með leyfi ríkissaksóknara, en þess hefði ekki verið aflað, sagði dómari og vísaði málinu frá dómi. Ríkissjóður var látinn greiða rúmar ellefu milljónir króna í sakarkostnað vegna málsvarnarlauna verjenda mannanna þriggja. Héraðssaksóknari hefur ákært mennina á ný fyrir stórfelld eignaspjöll. Ákærunni fylgir einkaréttarkrafa Varðar trygginga sem krefja mennina um tæpar 2,8 milljónir og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu krefst hálfrar milljónar frá þeim. Mennirnir neituðu sök við réttarhöldin yfir sér.

Share this article