Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ætlaði að aðstoða ökumann þegar áreksturinn varð

Read Full Article →

Maður sem slasaðist alvarlega í þriggja bíla árekstri á Kringlumýrarbraut í gær var að aðstoða ökumann bíls sem hafnaði á vegriði. Þetta segir Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Líðan hans er eftir atvikum,“ segir Heimir. Tæknideild og rannsóknardeild lögreglunnar fóru á vettvang í gær. Rannsókn er á frumstigi en Heimir segir atburðarásina liggja nokkuð ljóst fyrir. Ökumaður hafi misst stjórn á bíl sínum með þeim afleiðingum að hann hafnaði á vegriði og dekk á bílnum sprungið. Sá sem slasaðist hafi stöðvað bíl sinn til að koma þeim fyrri til aðstoðar. Heimir segir þriðja bílinn hafa ekið á hina svo úr varð þriggja bíla árekstur og maðurinn lent á milli.

Share this article