Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lést eftir að barnabílstóll brotnaði í hörðum árekstri

Read Full Article →

Hálka og snjóþekja á vegi og brotinn bílstóll eru meginorsök þess að barn á öðru ári lést í bílslysi í Borgarfirði í fyrra. Úrskurðuð látin við komu á spítala Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur skilað af sér skýrslu vegna áreksturs rútu og fólksbíls við gatnamót Vesturlandsvegar og Hringvegar í Borgarfirði 6. mars í fyrra. Tvö voru í bílnum, ökumaður og stúlka á öðru ári, en fjórtán manns voru í rútunni. Ökumaður bílsins slasaðist talsvert og hlaut stúlkan fjöláverka. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti stúlkuna og flutti hana með þyrlu á Landspítalann, þar sem hún var úrskurðuð látin. Einn farþegi rútunnar slasaðist lítillega í slysinu og var fluttur á sjúkrahús. Aðra sakaði ekki. Náði ekki að stöðva bílinn vegna hálku Í skýrslunni er aðdragandi slyssins reifaður. Fólksbíllinn ók suðaustur Vestfjarðarveg að gatnamótunum við Hringveg í Borgarfirði þar sem er stöðvunarskylda. Mjög hált var á veginum niður Bröttubrekku og náði ökumaður ekki að stöðva bílinn sem rann inn á Hringveg og í veg fyrir rútuna. Við áreksturinn kom mikið högg á vinstri hlið og afturhorn bílsins, sem kastaðist út fyrir veg og lenti hægra framhorn bílsins á norðurvegg húss sem staðsett er sunnan gatnamótanna. Bíllinn rann síðan aftur á bak um þrjá og hálfan metra áður en hann stöðvaðist. Bílstóllinn brotnaði af snúningsdisk Ökumaður bílsins var með öryggisbelti og var barnið í bílstól með snúningsdisk sem var festur við hægra aftursæti bílsins með ISOFIX-festingum. Ökumaður missti meðvitund við slysið en komst til meðvitundar á ný þegar vegfarendur sem komu að bílnum. Þá hafði efri hluti barnabílstólsins brotnað við áreksturinn og var barnið á hvolfi yfir afturgólfi í miðri bifreiðinni, spennt fast í efri hluta stólsins. Vegfarandi rétti stólinn við og hugaði að barninu. Tvær meginorsakir þess að stúlkan lést í slysinu Niðurstöður rannsóknarnefndar leiddu í ljós tvær meginorsakir slyssins. Mikill snjór og hálka á yfirborði Vestfjarðarvegar orsökuðu slakari hemlunarskilyrði fólksbílsins og urðu til þess að hann rann í veg fyrir rútuna. Þá brotnaði snúningsdiskur barnabílstólsins við áreksturinn með þeim afleiðingum að efri hlutinn, með barninu í, kastaðist inni í bifreiðinni við árekstrana tvo. Þegar bifreiðin að endingu stöðvaðist utan vegar var stóllinn á hvolfi yfir afturgólfi bílsins. Stóllinn hafi uppfyllt gæðakröfur Í skýrslunni kemur fram að barnabílstóllinn hafi uppfyllt gæðakröfur en hraði hliðarákeyrslunnar hafi verið talsvert meiri en samkvæmt lágmarkskröfum sem gerðar eru til barnabílstóla. Auk þess var rútan ríflega tífalt þyngri en bíllinn – og höggþunginn því mikill. Aðrar orsakir eru einnig nefndar í skýrslunni. Ökumaður rútunnar sá bílinn ekki koma af Vestfjarðarvegi inn á Hringveg þar sem trjágróður byrgði sýn hans og getur slíkt haft áhrif á viðbragðstíma ökumanna um Hringveg. Steinhús var skammt frá gatnamótum en bíllinn kastaðist af rútunni á vegg hússins sem var átta metra frá vegbrún. Þá leiddi bíltæknirannsókn í ljós að tjara var á hjólbörðum bílsins hægra megin og stöku litlir tjörublettir á vinstri afturhjólbörðum, sem minnkar veggrip í snjó og hálku.

Share this article