Innlent | mbl | 26.3.2026 | 13:13 Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Slysið var tilkynnt til lögreglu kl. 14:42 og fóru viðbragðsaðilar á vettvang. Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar tilkynnti Rannsóknarnefnd samgönguslysa um slysið kl. 15:09. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Snjór og hálka á yfirborði vegar var sennilega orsök slakra hemlunarskilyrða þegar banaslys varð í hörðum árekstri við gatnamótin á Bröttubrekku og Þjóðvegi 1 á Vesturlandi í mars á síðasta ári, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar rannsóknarnefndar samgönguslysa. Ökumaður fólksbifreiðar hóf að hemla að minnsta kosti 5 sekúndum fyrir slys, en rann engu að síður inn á hringveginn í veg fyrir hópbifreið. Þá er talið að trjágróðurbelti við norðausturhorn gatnamótanna hafi byrgt útsýn ökumanns hópbifreiðarinnar. Barn í barnabílstól í Dacia fólksbifreiðinni lést í slysinu og ökumaðurinn slasaðist alvarlega. Einn farþegi í Iveco hópbifreiðinni slasaðist lítillega. Frétt af mbl.is Þyrla kölluð út vegna alvarlegs umferðarslyss Fram kemur í skýrslu RNSA að fólksbifreiðinni hafi verið ekið suðaustur Vestfjarðaveg að gatnamótum við Hringveg 1 í Borgarfirði. Á sama tíma var hópbifreið ekið suður Hringveg að sömu gatnamótum. Dacia bifreiðin rann í veg fyrir Iveco hópbifreiðina svo af varð harður árekstur. Í greiningarkafla skýrslunnar kemur meðal annars fram að við gatnamótin á Vestfjarðavegi var snjólag á yfirborði vegarins og að ökumaðurinn náði ekki að stöðva bifreiðina með þeim afleiðingum að hún rann inn á Hringveginn. Yfirlitsmynd af slysstað sem sýnir akstursáttir bifreiðanna og staðsetningu þeirra eftir slysið. Við gatnamótin er biðskylda fyrir umferð um Vestfjarðaveg inn á Hringveg. Var Dacia bifreiðinni hemlað áður en hún kom að gatnamótunum og var hún í hemlun þegar hún rann í veg fyrir Iveco hópbifreiðina. Kastaðist út fyrir veg og lenti á húsvegg Við áreksturinn snérist Dacia bifreiðin, kastaðist út fyrir veg, og lenti á norðurvegg húss sem staðsett er sunnan gatnamótanna. Bifreiðin rann síðan afturábak um þrjá og hálfan metra áður en hún stöðvaðist. Var því um tvær ákomur að ræða á Dacia bifreiðina. Annars vegar á vinstri hlið og afturhorn bifreiðarinnar við áreksturinn við hópbifreiðina og hins vegar á hægra framhorn þegar hún lenti á húsveggnum. Frétt af mbl.is Barnið sem lést var farþegi í fólksbifreiðinni Slysið var tilkynnt til lögreglu kl. 14:42 og fóru viðbragðsaðilar á vettvang. Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar tilkynnti Rannsóknarnefnd samgönguslysa um slysið kl. 15:09. Í Dacia bifreiðinni var ökumaður ásamt tæplega eins og hálfs árs gömlu barni. Ökumaðurinn slasaðist talsvert í slysinu en barnið hlaut fjöláverka og lést af völdum þeirra. Barnið var flutt á sjúkrahús í Reykjavík með þyrlu Landhelgisgæslunnar og var úrskurðað látið þar. Ökumaður Dacia bifreiðarinnar var spenntur í öryggisbelti og var barnið spennt í barnabílstól sem var festur við aftursæti bifreiðarinnar með ISOFIX festingum. Einn farþegi úr Iveco hópbifreiðinni slasaðist lítillega í slysinu og var fluttur á sjúkrahús, en óvíst er hvort hann var spenntur í öryggisbelti. Ökumaður hópbifreiðarinnar var spenntur í öryggisbelti og slasaðist ekki. Yfirlitsmynd af slysstað sem sýnir akstursáttir bifreiðanna og staðsetningu þeirra eftir slysið. Úr skýrslu RSNA Samkvæmt loftpúðatölvu Dacia fólksbifreiðarinnar var hraði hennar 24 km/klst þegar áreksturinn varð en 65 km/klst fjórum sekúndum fyrir slysið. Samkvæmt ökurita Iveco hópbifreiðarinnar var henni ekið á um 87 km/klst hraða þegar áreksturinn varð. Niðurstaða áfengis- og lyfjarannsóknar á ökumönnunum var neikvæð. Meginorsakir slyssins Um klukkustund fyrir slysið fór hálkuvarnartæki um gatnamótin, áleiðis norður Vestfjarðaveg, en snjóhula varð eftir á veginum. Að sögn ökumanns hálkuvarnartækisins voru gatnamótin saltborin en saltið hafi ekki unnið á hálkunni áður en slysið varð. Dacia bifreiðinni var ekið undir leiðbeinandi hraða (70 km/klst) að gatnamótunum og ökumaður hóf hemlun að minnsta kosti 5 sekúndum fyrir slys, en rann engu að síður inn á Hringveg í veg fyrir hópbifreiðina. Snjór og hálka á yfirborði vegarins var sennilega orsök slakari hemlunarskilyrða. Frétt af mbl.is Á þriðja tug í bifreiðunum: Einn fluttur á sjúkrahús Barnið í bílstólnum var fest með þar til gerðum ólum í barnabílstólinn og snéri með bakið á móti akstursátt. Undirstaða stólsins var með snúningsdisk og var ISOFIX festing stólsins neðan við snúningsdiskinn á undirstöðunni. Við áreksturinn losnaði efri hluti stólsins með setunni, ofan snúningsdisksins, frá neðri hlutanum. Önnur ISOFIX festingin í bifreiðinni aflagaðist og stóllinn losnaði frá henni. Hin festingin var læst og hélt neðri hluta stólsins á sínum stað. Efri hluti bílstólsins, með barninu í, kastaðist því til inni í bifreiðinni við árekstrana en þegar hún stöðvaðist utan vegar var stóllinn á hvolfi yfir afturgólfi í miðri bifreiðinni. Steinhús við gatnamótin. Úr skýrslu RNSA Í skýrslunni kemur fram að aðrar orsakir slyssins hafi verið að trjágróðurbelti við norðausturhorn gatnamótanna byrgði útsýn ökumanns hópbifreiðarinnar gagnvart umferð af Vestfjarðavegi inn á Hringveg. Takmörkuð útsýn að Vestfjarðavegi getur haft áhrif á viðbragðstíma ökumanna um Hringveg. Fólksbifreiðin kastaðist út af veginum og rakst þar á steinhús. Húsið, sem var 8 metra frá vegbrún, var innan marka öryggissvæðis fyrir þennan veg. Hjólbarðar hægra megin á Dacia bifreiðinni voru með mikilli tjöru sem gerir það að verkum að þeir hafa minna grip í hálku og snjó. Ástand hjólbarða bifreiðarinnar var að öðru leyti gott. Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur mikilvægt að vetrarhjólbarðar séu hreinir en þeir safna tjöru og öðrum óhreinindum við akstur á hálkuvörðum vegum. Við það verða hjólbarðarnir hálli og veggrip minnkar. RNSA beinir því til allra ökumanna að þvo hjólbarða reglulega með dekkjahreinsi. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Engir áhorfendur á leik Íslands Tólf leikja sigurganga á enda Árangur án samkenndar: Verðið sem enginn talaði um Sjö ára sonurinn: Hvað er Salah að pæla? Umræðan Seinkum upphafi skóladags Biskupinn og biskupsstólinn í Skálholt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Næsta lægð væntanleg á laugardag Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Viðverugreiðslur fyrir 220 milljónir Daði Már fékk uppsagnarbréf Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Katla minnir á sig Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Á hjóli í appelsínugulri viðvörun Strætó stöðvar allan akstur á höfuðborgarsvæðinu Vill láta kanna bakgrunn Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Nýjast á mbl.is » Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Engir áhorfendur á leik Íslands Tólf leikja sigurganga á enda Árangur án samkenndar: Verðið sem enginn talaði um Sjö ára sonurinn: Hvað er Salah að pæla? Umræðan Seinkum upphafi skóladags Biskupinn og biskupsstólinn í Skálholt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Viðverugreiðslur fyrir 220 milljónir „Umferðin með minna móti“ Katla minnir á sig Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Katla minnir á sig Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Á hjóli í appelsínugulri viðvörun Strætó stöðvar allan akstur á höfuðborgarsvæðinu Vill láta kanna bakgrunn Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl