Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ók yfir á rangan vegarhelming og á sendibifreið

Read Full Article →

Innlent | mbl | 4.3.2026 | 11:27 Ók yfir á rangan vegarhelming og á sendibifreið Tilkynning um slysið kom til Neyðarlínunnar kl. 11:45 og var það tilkynnt til lögreglu. Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar tilkynnti Rannsóknarnefnd samgönguslysa um slysið kl. 12:28. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) hefur lokið rannsókn á banaslysi þar sem tvær fólksbifreiðar rákust saman á hringvegi austan við Kross í Berufirði þann 9. mars 2025. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar lést í slysinu. Var annarri bifreiðinni ekið yfir á vinstri vegarhelming og framan á bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Fram kemur í skýrslu RNSA að Mercedes Benz-fólksbifreið hafi umræddan dag verið ekið suðvestur Hringveg austan við Kross í Berufirði. Á sama tíma hafi Volkswagen Caddy-sendibifreið ekið úr gagnstæðri átt norðaustur hringveg. Mercedes Benz-bifreiðinni var ekið yfir á vinstri akrein og framan á sendibifreiðina í hörðum árekstri. Ökumaður Mercedes Benz-bifreiðarinnar, sem var 73 ára gamall karlmaður, hlaut fjöláverka og lést í slysinu. Einn farþegi var í framsæti Benz-bifreiðarinnar og slasaðist hann alvarlega. Ökumaður og farþegi Volkswagen Caddy-sendibifreiðarinnar slösuðust einnig alvarlega. Fram kemur í skýrslunni að tilkynning um slysið hefði borist til Neyðarlínunnar kl. 11.45 og var það tilkynnt til lögreglu. Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar tilkynnti Rannsóknarnefnd samgönguslysa um slysið kl. 12.28. Frétt af mbl.is Alvarlegt umferðarslys í Berufirði Ekki hægt að rekja orsakir slyssins til ástands bifreiðanna Tekið er fram að bæði ökumenn og farþegar hefðu verið spenntir í öryggisbelti. Báðar bifreiðarnar voru teknar til bíltæknirannsókna en þær voru í óökuhæfu ástandi eftir áreksturinn. Ekkert í niðurstöðum bíltæknirannsóknanna benti til þess að rekja mætti orsakir slyssins til ástands bifreiðanna. Þá var niðurstaða áfengis- og lyfjarannsóknar á ökumönnunum neikvæð. Í skýrslunni segir enn fremur að samkvæmt álestri úr loftpúðatölvu bifreiðarinnar hafi Benz-bifreiðinni verið ekið á 103 km/klst hraða við áreksturinn. Samkvæmt álestri úr loftpúðatölvu sendibifreiðarinnar var henni ekið á 101 km/klst hraða við áreksturinn. Frétt af mbl.is Tveggja bíla árekstur og vegurinn lokaður Varð sennilega ekki var við það þegar hann ók yfir á rangan vegarhelming RNSA segir að ökumaður Benz-fólksbifreiðarinnar hafi sennilega ekki orðið var við að hann ók yfir á vinstri vegarhelming en vegurinn lá í hægri beygju rétt fyrir slysstað. Engar hraðabreytingar voru gerðar á bifreiðinni fyrir slysið og ekki sáust ummerki um hemlun eða viðbrögð ökumanns á slysstað. Bifreiðinni var ekið beint áfram þar sem beygja var á veginum og yfir á gagnstæðan vegarhelming skömmu fyrir slysið. Að sögn farþega í bifreiðinni hófst aksturinn um 15 mínútum fyrir slysið. Ökumaður hafi undirbúið sig og ekki verið þreyttur fyrir aksturinn. Fyrir lá að aka bifreiðinni í 5 til 6 klukkustundir. Í skýrslunni eru einnig nefndar aðrar orsakir slyssins, það er að ökumaður Benz-bifreiðarinnar hafi verið var með skerta athygli af óþekktum ástæðum þegar slysið varð, auk þess sem hann hefði sennilega ekki orðið var við að hann ók yfir á vinstri vegarhelming. Innflutningsaðilar flytji ekki inn bifreiðar án loftpúða fyrir farþega í framsæti RNSA segir jafnframt að báðum ökutækjum hafi verið ekið yfir leyfðum hámarkshraða. Í lok skýrslunnar kemur RNSA með mikilvæga ábendingu. Þar segir að af öryggisástæðum hvetji RNSA innflutningsaðila ökutækja til að flytja ekki inn bifreiðar án loftpúða fyrir farþega í framsæti. Slysið varð á hringvegi austan við Kross í Berufirði. Úr skýrslu RNSA Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ók yfir á rangan vegarhelming og á sendibifreið Felldu tillögu um að skoða aðild að ESB Hrafn ráðinn framleiðslustjóri Gosfélagsins Hættir flutningum til og frá Persaflóa Gerrard ómyrkur í máli eftir frammistöðu Liverpool Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Voru að telja atkvæði í kjöri um nýjan leiðtoga Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Norðmaður féll í Íran Evrópa komin í ógöngur með regluverk Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Evrópa komin í ógöngur með regluverk Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Íbúð alelda í Grafarholti en engan sakaði Níu fá rúmar 11 milljónir Dimm él á Suðvesturlandi í dag Þurfum að koma upp 90 daga neyðarbirgðum af olíu RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Ók yfir á rangan vegarhelming og á sendibifreið Felldu tillögu um að skoða aðild að ESB Hrafn ráðinn framleiðslustjóri Gosfélagsins Hættir flutningum til og frá Persaflóa Gerrard ómyrkur í máli eftir frammistöðu Liverpool Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Opnunarskilyrði – skrefið sem skilgreinir aðildarferlið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Höfuðborgarbúar losna ekki við snjóinn í bili Röng upplýsingamiðlun getur grafið undan trausti Koma bara ef þeir fá læknishjálp Þurfum að koma upp 90 daga neyðarbirgðum af olíu Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Evrópa komin í ógöngur með regluverk Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Umdeild próf lögð fyrir nema Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Íbúð alelda í Grafarholti en engan sakaði Níu fá rúmar 11 milljónir Dimm él á Suðvesturlandi í dag Þurfum að koma upp 90 daga neyðarbirgðum af olíu RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“

Share this article