„Loðnuverðið er ekki gagnsætt og er allt á huldu,“ segir Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, sem vill að tryggt verði að Verðlagsstofa skiptaverðs hafi beinan aðgang að verði sjávarafurða. Sigurjón gerði í fyrradag að umtalsefni á Facebook verð á loðnu við löndun hér á Íslandi annars vegar og í Færeyjum hins vegar. Að minnsta kosti tvöfaldur munur „Miðað við það sem er uppi á borðum er þarna að minnsta kosti tvöfaldur munur og jafnvel meiri,“ segir Sigurjón við Fiskifréttir. Þetta bitni meðal annars á sjómönnum og á löndunarhöfnunum sem fái minna í sinn hlut en ella. „Þegar það er samfelld virðiskeðja er ekkert gagnsæi eða samanburður. Þá er hægt að láta tekjurnar koma fram hvar sem er í virðiskeðjunni,“ segir Sigurjón áfram. „Það þarf meira gagnsæi og Verðlagsstofa skiptaverð kemst ekki alveg í afurðaverðið,“ segir Sigurjón, sem kveðst vera í sambandi við marga sjómenn og á meðal þeirra sé mikill kurr vegna stöðunnar. „En þeir vilja ekki koma fram undir nafni.“ Ráðherra á sömu línu Fiskifréttir ræddu í október síðastliðinn við Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra um starfsemi Verðlagsstofu skiptaverðs. „Ég tel að Verðlagsstofa eigi að hafa aðgang að þeim upplýsingum sem stofnunin þarf til að uppfylla hlutverk sitt og skyldur,“ sagði ráðherra þá spurð hvort hún teldi að gera stofnuninni kleift að fá rafrænan aðgang að upplýsingum um útflutningsverðmæti sjávarafurða. Fram kom í grein Fiskifrétta á þeim tíma að forveri Hönnu Katrínar í ráðherraembætti hafði lagt til í frumvarpi að stofnunum sem safna upplýsingum um útflutning sjávarafurða, svo sem Skattinum og Hagstofu Íslands, yrði skylt að veita Verðlagsstofu skiptaverðs aðgang að upplýsingum um ráðstöfun afla og fiskverð með rafrænum eða stafrænum hætti. Þetta ákvæði hafi hins vegar verið fellt út í meðförum Alþingis sumarið 2024. Andstaða frá SFS og Skattinum Bæði Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og ríkisskattstjóri lýstu andstöðu við málið en Félag skipstjórnarmanna og Verðlagsstofa skiptaverðs sjálf lýstu sig fylgjandi því. Sigurjón segist nú vinna að því að Verðlagsstofa fái þennan greiðari aðgang. „Þá fá menn stöðuna og gögn sem er þá hægt að nota í skiptinguna til sjómanna. Ég reikna með því að þetta verði því þetta er það sláandi munur og miklir hagsmunir í veði.“