Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sigurður og Grímur hlutu Ásuverðlaunin

Read Full Article →

Innlent | mbl | 19.2.2026 | 17:00 Sigurður og Grímur hlutu Ásuverðlaunin Verðlaunin eru veitt annars vegar íslenskum vísindamanni sem hefur náð framúrskarandi árangri á sínu sérsviði og miðlað þekkingu sinni til framfara í íslensku samfélagi og hins vegar frumkvöðli sem hefur skarað fram úr í nýsköpun. mbl.is/Karítas Sigurður Reynir Gíslason, rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands, og Grímur Sæmundsen, stofnandi og forstjóri Bláa lónsins, hlutu í dag heiðursverðlaun úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright, eða Ásuverðlaunin svokölluðu. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin eru veitt annars vegar íslenskum vísindamanni sem hefur náð framúrskarandi árangri á sínu sérsviði og miðlað þekkingu sinni til framfara í íslensku samfélagi og hins vegar frumkvöðli sem hefur skarað fram úr í nýsköpun. Með því er lögð sérstök áhersla á tengsl vísinda og nýsköpunar og mikilvægi þeirra fyrir þróun og velferð íslensks samfélags, að því er segir í tilkynningu. Einn fremsti jarðefnafræðingur samtímans Sigurður Reynir lauk BS-gráðu í jarðfræði frá Háskóla Íslands árið 1980 og doktorsprófi í jarðefnafræði frá John Hopkins-háskóla í Bandaríkjunum árið 1985. Hann hefur frá þeim tíma starfað við Háskóla Íslands, fyrst sem fræðimaður og vísindamaður, en síðar sem rannsóknarprófessor við Jarðvísindastofnun háskólans. Hann er alþjóðlega þekktur fyrir rannsóknir sínar á kolefnishringrás jarðar, bindingu kolefnis í bergi og áhrif eldgosa á loft, vatn og lífríki. Þá hafa rannsóknir Sigurðar og samstarfsfólks hans haft veruleg áhrif á alþjóðlega umræðu og þróun lausna í loftslagsmálum og kolefnisbindingu og markað honum sess sem einum fremsta jarðefnafræðinga samtímans, að því er segir í tilkynningunni. Sigurður er alþjóðlega þekktur fyrir rannsóknir sínar á kolefnishringrás jarðar, bindingu kolefnis í bergi og áhrif eldgosa á loft, vatn og lífríki. mbl.is/Karítas Haft veruleg áhrif á vöxt íslenskrar ferðaþjónustu Grímur lauk embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 1981 og framhaldsnámi í íþróttalæknisfræði frá London Hospital Medical College árið 1995. Á starfsferli sínum hefur hann komið að og hrint í framkvæmd fjölmörgum nýsköpunarverkefnum á heilbrigðissviði og leitt uppbyggingu og þróun Bláa lónsins hf. frá stofnun félagsins árið 1992. Hefur frumkvöðlastarf hans haft veruleg áhrif á vöxt íslenskrar ferðaþjónustu og stuðlað að því að staðsetja Ísland á alþjóðlegum vettvangi sem eftirsóttan áfangastað á sviði heilsu og vellíðanar, að því er segir í tilkynningunni. Grímur hefur komið að og hrint í framkvæmd fjölmörgum nýsköpunarverkefnum á heilbrigðissviði og leitt uppbyggingu og þróun Bláa lónsins hf. frá stofnun félagsins árið 1992. mbl.is/Karítas Segir orð Bergþórs valda misskilningi Refsað fyrir að neita að flytja til Rússlands Sigurður og Grímur hlutu Ásuverðlaunin Andlát: Jón Þ. Ólafsson Sprungnir brjótstapúðar orsökin Bjartari tímar fram undan Vítahringur skuldsetningar ógnar Félagsbústöðum Fleira áhugavert Veita undanþágur vegna líkbrennslu Tvöföld veikindi hjá því opinbera Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ Beint: Andrew handtekinn „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Samfylkingin ekki lengur stærst Þorsteinn Pétur sýknaður Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng „Maður heldur að svona gerist ekki“ Stórhættuleg gatnamót við vissar aðstæður Umferðarslys við Rauðavatn í nótt Ætla að lýsa Eurovision beint úr Efstaleiti Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum Segir orð Bergþórs valda misskilningi Refsað fyrir að neita að flytja til Rússlands Sigurður og Grímur hlutu Ásuverðlaunin Andlát: Jón Þ. Ólafsson Sprungnir brjótstapúðar orsökin Bjartari tímar fram undan Vítahringur skuldsetningar ógnar Félagsbústöðum Fleira áhugavert „Það var bara allt á floti“ Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Beint: Andrew handtekinn Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Samfylkingin ekki lengur stærst Þorsteinn Pétur sýknaður Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng „Maður heldur að svona gerist ekki“ Stórhættuleg gatnamót við vissar aðstæður Umferðarslys við Rauðavatn í nótt Ætla að lýsa Eurovision beint úr Efstaleiti Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum

Share this article