Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hlaut verðlaun Jóns forseta

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.4.2026 | 7:00 Hlaut verðlaun Jóns forseta Í rökstuðningi forsætisnefndar Alþingis fyrir verðlaununum segir að Einar Már Guðmundsson hafi lagt ríkulegan skerf af mörkum til að styrkja tengsl Danmerkur og Íslands. mbl.is Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Einar Már Guðmundsson rithöfundur hlaut Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta fyrir árið 2026, en þetta var kunngjört á hátíð Jóns Sigurðssonar sem haldin var í Jónshúsi í Kaupmannahöfn á sumardaginn fyrsta. Það var Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis sem afhenti Einari Má verðlaunin við það tækifæri. Frá þessu er greint á vef Alþingis þar sem segir m.a. að Alþingi veiti Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta í minningu starfa hans í þágu Íslands og Íslendinga. Hverju sinni hljóti verðlaunin einstaklingur sem hafi unnið verk sem tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þau verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála. Frétt af mbl.is Birgir Thor Möller hlaut verðlaun Jóns Sigurðssonar Hefur lagt ríkulegan skerf af mörkum Í rökstuðningi forsætisnefndar Alþingis fyrir verðlaununum segir að Einar Már Guðmundsson hafi lagt ríkulegan skerf af mörkum til að styrkja tengsl Danmerkur og Íslands. Hann hafi dvalið í Danmörku við nám og störf og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir ritstörf sín. Þar á meðal eru Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, Norrænu bókmenntaverðlaunin og Verðlaun Karenar Blixen. „Einar Már er mikill sagnamaður með ljóðrænan og kraftmikinn stíl sem nýtur sérstakrar hylli og virðingar í Danmörku og er framlag hans til bókmennta og kynningar íslenskrar menningar í Danmörku þakkarvert. Fyrir það hlýtur Einar Már Guðmundsson Verðlaun Jóns Sigurðssonar árið 2026,“ segir forsætisnefnd Alþingis. Veitt í 18. sinn Á hátíðarhöldunum í Jónshúsi var Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður aðalræðumaður. Í hátíðarræðu sinni fjallaði hún m.a. um sameiginlegan skjalaarf Íslands og Danmerkur. Nefndi hún að í margar aldir hefðu Íslendingar deilt sögu sinni með Dönum, en árið 1928 hafi Danir afhent Íslendingum mikið magn skjala úr stjórnsýslu og dómskerfi, auk fornbréfa og annarra mikilvægra skjala íslenskra sem væru ómetanleg gögn til rannsókna á sögu Íslands. Þá var tónlistarflutningur í höndum ungra íslenskra tónlistarkvenna sem búsettar eru í Danmörku. Það voru Jana María Guðmundsdóttir söngkona, píanóleikararnir Sigurdís Sandra Tryggvadóttir og Ólína Ákadóttir og Helga Diljá Jörundsdóttir fiðluleikari. Þetta var í 18. skiptið sem verðlaunin voru veitt. Árið 2008 hlaut þau Guðjón Friðriksson sagnfræðingur og rithöfundur, en meðal verðlaunahafa eru frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands, Pétur M. Jónasson prófessor og vatnalíffræðingur og Tryggvi Ólafsson myndlistarmaður. Meðal danskra verðlaunahafa er Bertel Haarder, fyrrverandi menntamálaráðherra Danmerkur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hlaut verðlaun Jóns forseta 89 ára í fullu fjöri Utanríkisráðherra Írans hittir Pútín í Rússlandi Fyrrum glímukóngur Íslands með matseðil sem kemur á óvart Óvenjuleg saga og einstök Umræðan Tækifærið er núna „Um margt að semja“ – eða hvað? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stóra málið hvar valdið liggi til framtíðar Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ég tala íslensku! Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Mest lesið Í gær Í vikunni Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Stóra málið hvar valdið liggi til framtíðar Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Íslensku fyrirvaranir látnir liggja á milli hluta Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Ég tala íslensku! Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Sérsveitin kölluð út á Akureyri Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Nýjast á mbl.is » Hlaut verðlaun Jóns forseta 89 ára í fullu fjöri Utanríkisráðherra Írans hittir Pútín í Rússlandi Fyrrum glímukóngur Íslands með matseðil sem kemur á óvart Óvenjuleg saga og einstök Umræðan Tækifærið er núna „Um margt að semja“ – eða hvað? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leita að manni við Háafoss Leiðtogar heimsins „í áfalli“ Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Mest lesið Í gær Í vikunni Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Stóra málið hvar valdið liggi til framtíðar Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Eins og ráðherra sé að vara við barneignum Íslensku fyrirvaranir látnir liggja á milli hluta Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys Maðurinn fannst látinn við Háafoss Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Ný vefsíða auðveldar fólki fasteignaleit Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Vilja hækkun framlags vegna mikils árangurs Eins og risaþota væri að lenda fyrir utan húsið Ég tala íslensku! Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Sérsveitin kölluð út á Akureyri Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði

Share this article