Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Jóhann orðinn framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi

Read Full Article →

Jóhann Már Helgason hefur tekið við sem framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi og mun sömuleiðis taka við sem forstöðumaður viðskiptastýringar fyrirtækisins í Noregi, Lúxemborg og Íslandi. Hann hefur starfað sem forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Wolt á Íslandi síðan í september 2024. Í nýju hlutverki mun Jóhann hafa yfirumsjón með stórum hluta af sölustarfsemi Wolt á mörkuðunum þremur. Jóhann mun sömuleiðis stýra alþjóðlegu teymi þar sem um ellefu stjórnendur heyra beint undir hann. Sjá einnig Sendir boltann og matinn heim „Ég er virkilega spenntur fyrir þessu nýja hlutverki og tækifærinu til að starfa meira á alþjóðavettvangi. Wolt hefur byggt upp alveg einstaka þjónustu á þessum mörkuðum og ég hlakka til að vinna náið með teymunum okkar á Íslandi, í Noregi og Lúxemborg að því að halda áfram að stækka og skapa aukið virði fyrir bæði samstarfsaðila og viðskiptavini,“ segir Jóhann. Undir stjórn Jóhanns hefur Wolt orðið eitt þekktasta vörumerki landsins með yfir 500 samstarfsaðila á skrá. „Jóhann hefur staðið sig frábærlega á Íslandi og sýnt af sér sterka leiðtogahæfileika og skýra sýn í viðskiptum. Hann er algjörlega tilbúinn í stærra hlutverk og við vitum að hann á eftir að styrkja starfsemi okkar til muna þvert á þessi lönd,“ segir Elisabeth Stenersen, forstöðumaður markaðssvæða hjá Wolt á Norðurlöndum, í Eystrasaltsríkjunum og Lúxemborg.

Share this article