Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hitti Donald Tusk pólskan starfsbróður sinn í Varsjá í Póllandi í dag. Kristrún og Tusk funduðu í um klukkustund áður en þau komu fram á blaðamannafundi. Þar var einna helst fjallað um fyrirhugaða atkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Tusk talaði meðal annars um Pólverja á Íslandi og lýsti því yfir að hann yrði ánægður ef Ísland og Noregur gengju í ESB. Kristrún minntist líka á hinn mikla fjölda Pólverja sem búa á Íslandi og sagði það hafa gengið mjög vel. Uppáhaldskennari dóttur hennar sé til dæmis pólsk. Hún sagði enga ákvörðun enn hafa verið tekna um hvenær þjóðaratkvæðagreiðslan verði haldin, en lagði áherslu á að ef til aðildar kæmi væri lykilatriði að virðing væri boðin fyrir sérkennum allra þjóða. Ísland hafi mikið fram að færa, til dæmis í auðlindastjórnun, velferðarmálum og alþjóðastjórnmálum. Tusk sagði að ESB-aðild hafi gefist Pólverjum vel. Pólverjar væru til reiðu búnir að aðstoða Ísland á allan hátt Sambandið stæði ekki höllum fæti. Öryggismál væru ein af lykilrökum fyrir hugsanlegri aðild Íslands. Í lok fundarins gaf Tusk Kristrúnu viðeigandi gjöf – Prins Póló súkkulaði. Kunni Kristrún vel að meta og sagði það einmitt uppáhaldssúkkulaði föður síns.