Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stjórnin sprungin í Færeyjum – kosið strax í mars

Read Full Article →

Aksel V. Johannesen lögmaður Færeyja boðaði í dag til kosninga í landinu 26. mars, en þær áttu upphaflega að fara fram í desember. Yfirlýst ástæða er ósamkomulag í ríkisstjórnarsamstarfinu. Framsókn, sem myndar stjórn með Jafnaðarmönnum, hafði sett ákveðna afarkosti fyrir þingfund í gær, þar sem taka átti hækkun eftirlaunaaldurs fyrir. Ef það myndi ekki gerast, myndi flokkurinn leggjast gegn því að Suðureyjargöngin færu í útboð. Göngin eiga að tengja saman Suðurey og Sandey og yrðu næstlengstu göng heims ef af þeim yrði. Eftirlaunafrumvarpið var samþykkt með einu atkvæði í annarri umræðu í síðustu viku. Niðurstaðan varð að fresta báðum málunum til morguns, en taka þá fyrst fyrir útboð á Suðureyjagöngum og síðan eftirlaunafrumvarpið. Eftir að útboðið á Suðureyjagöngunum hafði verið samþykkt steig Aksel V. Johannesen í pontu og sagði að samstaða væri ekki lengur til staðar innan ríkisstjórnarflokkanna. Því teldi hann kominn tíma til að boða til kosninga. Hækkun eftirlaunaaldurs bíður því næsta kjörtímabils, sem og tillaga um styttingu vinnuvikunnar í 37 tíma sem einnig lá fyrir þinginu.

Share this article