Ferðamálastofa telur að Háifoss í Þjórsárdal gæti orðið einn af vinsælustu áfangastöðum erlendra ferðamanna á komandi árum. Ástæðan er meðal annars sú að fossinn birtist nýverið í myndskeiði í nýjustu þáttaröðinni af Stranger Things. Í tilkynningu segir að eftir birtingu þáttarins hafa mælst 5.000% aukning í leit að nafni fossins á netinu, en þó líklega út frá lágu grunngildi. Talið er þessi aukna athygli muni leiða til stóraukins áhuga ferðamanna á næstu misserum og hefur því Ferðamálastofa hafið reglubundna talningu ferðamanna við Háafoss. „Það eru margir sem spá því að Háifoss verði næsta Stuðlagil og að umferð um hann muni margfaldast. Reynsla okkar er sú að birting íslenskra áfangastaða í vinsælu alþjóðlegu myndefni getur haft afgerandi áhrif á ferðamannastrauminn. Heimsóknum að flugvélaflakinu á Sólheimasandi og í Fjaðrárgljúfur fjölgaði til dæmis verulega eftir að myndskeið frá þessum stöðum birtust í tónlistarmyndbandi Justin Bieber,“ segir Jóhann Viðar Ívarsson, greinandi á rannsókna- og tölfræðisviði Ferðamálastofu. Markmiðið með talningunni er að afla rauntímaupplýsinga um fjölda gesta en slík gögn eru sögð mikilvæg til að meta og taka upplýstar ákvarðanir um uppbyggingu á svæðinu, skipulag og þjónustu en ekki síst til að vernda svæðið fyrir álagi. „Fyrirhuguð er lagning nýs vegar að fossinum en núverandi vegur er slæmur og aðstaða engin. Þá liggur átta kílómetra gönguleið á milli Háafoss og þjóðaldarbæjarins á Stöng í Þjórsárdal, um tilkomumikið Fossárgil sem fossinn fellur niður í.“