Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Óvæntar vinsældir í netheimum

  • What: Increased popularity of Háifoss after being featured in Stranger Things
  • Impact: More tourists visiting the location
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 1.3.2026 | 7:28 Óvæntar vinsældir í netheimum Háifoss, 122 metra hár og fellur fram af hálendisbrún, vekur heimsathygli og búist er við að ferðamönnum á staðnum fjölgi nú mjög. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Háifoss er staður sem á mikið inni. Sú athygli sem svæðinu er veitt nú verður til þess að æ fleiri ferðamenn fara að svæðinu og því fylgir að bæta þarf aðgengi og aðstöðu,“ segir Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Tilefni ummæla hans er sú spá og yfirlýsing sem Ferðamálastofa gaf út í vikunni um að Háifoss í Þjórsárdal gæti í náinni framtíð orðið einn af vinsælustu áfangastöðum erlendra ferðamanna á komandi árum. Þar kemur til að nýlega birtust myndskeið af fossinum í nýjustu þáttaröðinni af Stranger Things . Í kjölfarið mældist um 5.000% aukning í leit að nafni fossins á netinu. Vegleysa hefur verndað Fjölgun leita að Háafossi í netheimum gefur vísbendingar um framhaldið; það er sjáist eftirtektarverðir staðir í íslenskri náttúru í vinsælu sjónvarpsefni getur slíkt komið ýmsu af stað. Þarna má nefna myndir af Stuðlagili í Jöklu, þangað sem tugir þúsunda ferðamanna koma nú á stað sem fæstir þekktu áður. Sömu sögu er að segja um flugvélarflakið á Sólheimasandi í Mýrdal og Fjaðrárgljúfur á Síðu, staði sem komu sterkt inn eftir að myndir þaðan birtust í myndbandi með Justin Bieber. Háifoss er innst í Þjórsárdal og fellur þar 122 metra hár fram af hálendisbrúninni. Þar rétt fyrir ofan greinist Fossá í tvennt og fossinn Granni, sem fellur í sama gljúfri og Háifoss, er ekki síður eftirtektarverður. Leiðin að Háafossi er fremur slóði en vegur. Þetta er grýtt braut – hluti af Línuveginum svonefnda sem lagður var um 1980. Sá liggur samsíða háspennulínum sem flytja rafmagn frá virkjunum á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu að suðvesturhorninu. Þetta er braut einasta fær jeppum eða vel útbúnum bílum og hve torfær hún er segir Haraldur Þór að hafi í raun veitt staðnum ákveðna vernd. Sá fjöldi fólks sem þangað kemur sé viðráðanlegur miðað við aðstæður. Frétt af mbl.is Telja Háafoss geta orðið næsta Stuðlagil Haraldur Þór Jónsson Framkvæmdir í bígerð „Við Háafoss er nú lítið bílastæði en engin önnur aðstaða. Svæðið er á þjóðlendu og í umsjón Náttúruverndarstofnunar sem við höfum verið í samskiptum við. Rætt er um að sveitarfélaginu verði falin umsjón svæðisins og fyrir liggja drög og teikningar að bættri aðstöðu þar. Hugmyndin er þá að reisa útsýnispall á bjargbrúninni og setja þar upp handrið til að tryggja öryggi gesta. Einnig að bæta göngustíga og fleira. Við vonum að þessar framkvæmdir hefjist í lok sumars,“ segir Haraldur. Mikið er nú umleikis í Þjórsárdal við byggingu Fjallabaðanna við Rauðukamba. Starfsemi þeirra hefst eftir rúm tvö ár og um líkt leyti verður á svæðinu opnuð gestastofa sem verður við Selhöfða í minni dalsins. „Fjallaböð, gestastofa og aukinn áhugi á stórbrotnum Háafossi. Þessu öllu þarf að bregðast við og vissulega erum við á vaktinni,“ segir Haraldur Þór. Á nýjum stað á kortinu Nú eru uppi hugmyndir um að bæta leiðina að Gjánni og þjóðveldisbænum að Stöng með nýjum vegi úr Hólaskógi. Einnig að bæta gönguleið á milli Háafoss og Stangar um hið tilkomumikla Fossárgil. „Þá kemst brú yfir Þjórsá við Búðafoss, sem er hluti af byggingu Hvammsvirkjunar, í gagnið innan fárra ára. Með því verður til ný hringleið um uppsveitir Árnessýslu og Rangárþings ytra sem í raun setur Þjórsárdal og Skeiða- og Gnúpverjahrepp á nýja staði á landakortinu,“ segir oddvitinn. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mesta röskun á flugi frá því í covid-faraldrinum Óvæntar vinsældir í netheimum „Það er engin heppni í skák" Íranir svara árásum: Trump hótar meiri hörku Orðlaus yfir vægum dómi Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Nýlegar umferðarspár – Samanburður við eldri spár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Merki um að Khamenei sé látinn Í raun verið í kreppuverðbólgu í fjögur ár Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Mest lesið Í gær Í vikunni Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Aukið aðhald óháð Kerecis Störf meirihlutans „ekkert sérstaklega glæsileg“ Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Segir lítinn mun á Sjálfstæðisflokki og Miðflokki Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Illugi nýr formaður Ungra vinstri grænna „Þetta er grafalvarleg staða“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Mesta röskun á flugi frá því í covid-faraldrinum Óvæntar vinsældir í netheimum „Það er engin heppni í skák" Íranir svara árásum: Trump hótar meiri hörku Orðlaus yfir vægum dómi Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Nýlegar umferðarspár – Samanburður við eldri spár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 21 milljarðs gjaldþrot Play Ný könnun fyrir kosningar í borginni: Tveir turnar „Þetta er grafalvarleg staða“ Hvetja starfsfólk til að yfirgefa Ísrael í dag Mest lesið Í gær Í vikunni Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Aukið aðhald óháð Kerecis Störf meirihlutans „ekkert sérstaklega glæsileg“ Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Segir lítinn mun á Sjálfstæðisflokki og Miðflokki Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Illugi nýr formaður Ungra vinstri grænna „Þetta er grafalvarleg staða“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Mikil endurnýjun hjá Sjálfstæðisflokknum „Þetta er grafalvarleg staða“ Umdeild pálmaolía í Bertolli Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ 233 milljónir í starfslokasamninga Sér ekki meirihluta með Samfylkingunni Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“

Share this article