Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Notkun á peptíði „stigmögnun í útlitsdýrkun“

Read Full Article →

Frístundaráðgjafi í félagsmiðstöð segir sölu á og notkun á ólöglega efninu peptíði vera dæmi um stigmögnun útlitsdýrkunar. Dæmi eru um að unglingar hafi sprautað sig með efninu í von um að líta betur út. Tollurinn stöðvaði nýverið stórar sendingar af peptíði, efni sem vakið hefur mikla athygli á samfélagsmiðlum að undanförnu. Einn hefur leitað á eitrunarmiðstöð eftir að hafa notað það. Peptíð eru keðjur af amínósýrum sem gengið hafa kaupum og sölum á samfélagsmiðlum. Markaðssetning efnisins beinist oft sérstaklega að unglingum sem sprauta sig með því í von um að líta betur út. Fréttastofa ræddi við íslensk ungmenni og frístundaráðgjafa sem öll höfðu séð efnið á samfélagsmiðlum.

Share this article