Heimilislæknir segir notkun peptíða afar varasama - þeir geti haft áhrif á hormónajafnvægi og áhrifin gætu orðið langvarandi. „Ég þekki kollega sem hafa fengið þetta inn á borð til sín,“ segir Gunnar Þór Geirsson læknir og formaður Félags íslenskra heimilislækna. „Það var fyrirspurn um hvort þetta væri öruggt og skynsamlegt að nota þessi efni.“ Læknir segir að notkun svokallaðra peptíða geti haft langtímaafleiðingar á heilsu fólks. Aukin eftirspurn er eftir sprautum til að nota efnið. Kom fyrirspurnin frá ungmenni? „Já, ungum einstaklingi.“ Brögð hafa verið að því að ungmenni sprauti sig með ólöglegum peptíðum í fegrunarskyni. Efnið er selt á svarta markaðinum, oftast á samfélagsmiðlum, þau sem hér um ræðir hafa ekki verið samþykkt af lyfjastofnunum og stórar sendingar að utan hafa verið gerðar upptækar. Starfsfólk Lyfju hefur orðið vart við aukna eftirspurn eftir sprautum sem notaðar eru til að sprauta efninu í líkamann og nokkuð er um að fólk komi í apótekið og spyrji starfsfólk hvernig best sé að bera sig að við að sprauta sig með peptíðum. „Þetta eru einfaldir strúktúrar í líkamanum sem samt gegna mikilvægu hlutverki. Til dæmis sem taugaboðefni, í hormónakerfi líkamans, uppbyggingu vöðva og fleira,“ segir Gunnar. Peptíðagusa getur riðlað jafnvægi líkamans Og notkunin getur valdið talsverðum skaða, segir Gunnar. „Ef það kemur allt í einu einhver gusa af einhverjum boðefnum sem líkaminn framleiðir vanalega sjálfur. Það getur riðlað viðkvæmu jafnvægi og haft neikvæðar afleiðingar í för með sér til lengri eða skemmri tíma. Ef þú tekur inn svona efni þá hefurðu enga stjórn á hvar það virkar.“ Getur þetta haft áhrif á hormónajafnvægið í líkamanum? „Já.“ Er fólk sem er enn að vaxa, eins og unglingar, sérlega viðkvæmt fyrir röskunum? „Ég myndi einmitt telja að börn og unglingar sem eru á þessum viðkvæma aldri ættu sérstaklega að forðast að taka inn einhverskonar efni. En auðvitað myndi ég ráðleggja öllum að forðast að taka þessi efni inn,“ segir Gunnar.