Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Gervigreindina verði að nota í læknisfræði

Read Full Article →

Innlent | mbl | 25.2.2026 | 21:58 Gervigreindina verði að nota í læknisfræði Christophe Albert, læknir. mbl.is/Eggert Jóhannesson Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Gervigreind er eitthvað sem verður að nota til að aðstoða við ákvarðanatöku þegar bregðast þarf við áskorunum sem fylgja stórfelldum hernaðaraðgerðum, að sögn Christophe Albert, læknis hjá umbreytingaherstjórn Atlantshafsbandalagsins (NATO ACT) í Norfolk í Virginíufylki í Bandaríkjunum. „Ég er ekki að segja að gervigreind taki ákvarðanir fyrir þig. Það er alltaf manneskja sem hefur lokaorðið, en manneskjan fær stuðning frá þessari tækni til að taka bestu ákvörðunina fyrir fólkið sem við berum ábyrgð á,“ segir Albert í samtali við blaðamann mbl.is í Grósku í dag þar sem hið árlega NATO-hakkaþon fór fram í vikunni. Frétt af mbl.is Fer fram á Íslandi í fyrsta skipti Byggja upp heilbrigðiskerfi fyrir næstu 20 ár Markmið hakkaþonsins er að þróa tæknilausnir fyrir raunverulegar áskoranir NATO á sviði öryggis- og varnarmála. Að þessu sinni voru kynntar þrjár áskoranir sem þátttakendur gátu valið úr að leysa, tengdar gervigreind, netöryggi og skráningu særðra á átakasvæðum. Albert sérhæfir sig í því síðastnefnda. „Mitt starf er að byggja upp heilbrigðisþjónustu fyrir næstu tuttugu árin og tryggja að hún geti brugðist við og tekist á við áskoranir stórfelldra hernaðaraðgerða,“ segir hann og bætir við að hann vonist til að lausnir keppenda hakkaþonsins geti hjálpað til við þá vinnu. „Þannig að við báðum þau að skoða hvernig við gætum hámarkað nýtingu allra takmarkaðra auðlinda,“ segir hann og nefnir þar á meðal lækna sem hann segir að séu of fáir. „Til að tryggja að við komum alltaf réttum sjúklingi á réttan stað á réttum tíma þegar margir eru slasaðir er gervigreind í raun eitthvað sem þú verður að nota til að aðstoða þig við ákvarðanatöku,“ bætir hann við. Sex mánaða vinna á fimm dögum Hann segir samstarf við keppendur ganga afar vel og hrósar þeim í hástert. „Það er ótrúlegt að sjá þegar maður leggur vandamálin fyrir þau, og fyrir mér eru þetta mjög flókin vandamál, að þau geta ekki aðeins komið með lausnir heldur ganga þau miklu lengra,“ segir hann og bendir á að keppendurnir séu ekki læknisfræðimenntaðir. Hann segir samskiptin vera mikil og að á þessum fimm dögum sem keppnin stendur yfir geti unnist vinna sem hefði undir eðlilegum kringumstæðum tekið allt að sex mánuði. „Fyrir mitt leyti þá hef ég fullt af vandamálum sem ég get ekki leyst og þau hafa fullt af lausnum en þau vita ekki hvert vandamálið er, þannig að þegar við vinnum saman eru hlutirnir fljótir að gerast,“ segir Albert. Vill heimsækja Bláa lónið og eldfjöllin Hann segist vera að heimsækja Ísland í fyrsta sinn og kveðst vilja koma hingað aftur utan vinnutíma. „Því miður hef ég ekki upplifað Ísland eins og flestir ferðamenn þar sem ég er aðeins hér í vinnuferð, en ég mun án efa koma hingað með fjölskyldunni og heimsækja Bláa lónið og skoða eldfjöllin,“ segir hann að lokum. Frétt af mbl.is Kanadískir hermenn og íslenskir námsmenn takast á Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tapið fyrir ári síður enn þá Minntust Kjartans í Garðakirkju Minnist fyrstu ástarinnar í einlægri færslu Þjálfarabreytingar í Garðabænum Meintur þjófur réðst að starfsmanni Umræðan Að banka á brennandi dyr ESB Mótun manneskjumiðaðrar gervigreindar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fangavörður grunaður um brot í starfi Nýja stöðin afar mikilvæg Helmingurinn neitaði að klappa Viðbragð óásættanlegt en betri tíð í vændum Mest lesið Í gær Í vikunni Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Fangavörður grunaður um brot í starfi Útskrifaður af sjúkrahúsi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Nýjast á mbl.is » Tapið fyrir ári síður enn þá Minntust Kjartans í Garðakirkju Minnist fyrstu ástarinnar í einlægri færslu Þjálfarabreytingar í Garðabænum Meintur þjófur réðst að starfsmanni Umræðan Að banka á brennandi dyr ESB Mótun manneskjumiðaðrar gervigreindar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Kanadískir hermenn og íslenskir námsmenn takast á Fangavörður grunaður um brot í starfi Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Mest lesið Í gær Í vikunni Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Fangavörður grunaður um brot í starfi Útskrifaður af sjúkrahúsi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu

Share this article