Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Glerbrotum ringdi inn í bílinn

Read Full Article →

Innlent | mbl | 25.2.2026 | 23:43 Glerbrotum ringdi inn í bílinn Snjóruðningstæki geta frákastað miklu magni af snjó, slabbi og krapa. Tveir bílar hið minnsta eru tjónaðir og mildi var að ekki fór verr. Samsett mynd/Aðsend/mbl.is/Kristinn Magnússon Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki „Allt í einu kom bara flóð af krapa og klaka yfir vegriðið.“ Þetta segir Hilmar Andrésson sem lenti í þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að fá afrakstur snjómoksturs snjóruðningstækis úr gagnstæðri akstursstefnu yfir bílinn þegar hann var á leið suður Kringlumýrarbraut í átt að Kópavogi og Garðabæ til móts við N1 í Fossvogi í kvöld. Hjálpsamur vegfarandi setti inn færslu í hópinn Íslensk bílamyndbönd á Facebook og auglýsti eftir ökumanni bílsins sem fékk holskefluna yfir sig. Sagðist hún hafa orðið vitni að atvikinu sem hún kallar í færslunni stórhættulegt háttalag. Lýsir hún sig tilbúna að standa með ökumanninum ef hann þurfi að fara með málið lengra. Hilmar gaf sig þá fram í ummælum við færsluna og skiptust þau á orðum þar sem hún ítrekaði vilja sinn til að bera vitni í málinu ef þurfa þyki. Rúðan gaf sig undan þunganum Í samtali við mbl.is segir Hilmar að bílinn hafa tekið á sig þungt högg og skaflinn hulið alla framrúðuna sem hafi þá gefið sig undan þunganum þannig að glerbrotum rigndi inn í bílinn. „Ég sá hvað var að fara að gerast rétt áður en það gerðist og náði að hægja aðeins ferðina en þegar þetta skall á bílnum þurfti ég eiginlega bara að stoppa bílinn. Sem betur fer var enginn fyrir aftan mig þannig að ég setti bara hazard-ljósin á og fór upp í Hamraborg og kíkti á þetta,“ segir hann. Þar kom í ljós að vinstra framljósið var einnig brotið en birtuskil voru með þeim hætti að erfitt var að sjá hvort bíllinn hefði skemmst enn frekar. Nú taka við formsatriði eins og að tala við tryggingafélagið og tilkynna atvikið til Vegagerðarinnar, sem sér um þjónustu á veginum. Þá segist Hilmar ætla að setja sig betur í samband við hjálpsama vegfarandann og þakka henni fyrir. Framrúðan er mölbrotin eins og sjá má á myndunum. Samsett mynd/Aðsend Vinstra framljósið er brotið. Ljósmynd/Aðsend Hliðarspegillinn sprakk Í ummælum við færslu vegfarandans gaf annar ökumaður, Hafþór Aron Tómasson, sig sömuleiðis fram og sagðist líklega hafa lent í sama snjóruðningstækinu í sömu akstursstefnu rétt hinum megin við Hamraborg. Í samtali við mbl.is segir Hafþór að hliðarspegillinn hafi farið illa í atvikinu og að eflaust kæmu fleiri skemmdir í ljós þegar birtir og bíllinn þornar. Hliðarspegillinn er ónýtur. Samsett mynd/Aðsend Eins og hann hafi keyrt á eitthvað Hafþór lýsir atvikinu þannig að honum hafi mætt veggur af slabbi, þungum, blautum snjó og vatni. Höggið á bílinn hafi verið svo þungt að honum hafi liðið eins og hann hefði keyrt á eitthvað. „Ég hélt bara að framrúðan væri að fara en hliðarspegillinn er sprunginn. Hann er bara ónýtur. Ég reyndi að skoða bílinn en það er ekkert gott í þessum aðstæðum.“ Hafþór segist hafa séð tækið koma en hann hafi ekkert getað gert því atburðarásin hafi verið svo hröð. „Þetta eru bara tvær, þrjár sekúndur og svo allt í einu er þetta komið á mann.“ Hann segir umferðina hafa verið þétta og að hann hafi engan veginn verið sá eini sem lenti í frákastinu undan snjóruðningstækinu. Skjáskot/Facebook Lögregla haft samband Hafþór hefur rætt við Vegagerðina vegna málsins og þar var honum bent á að skila inn tilkynningu. Þá mun hann þurfa að ræða við sitt tryggingafélag rétt eins og Hilmar. „Þegar ég hringdi í Vegagerðina sögðu þau mér að þau hefðu verið búin að fá tilkynningar frá fullt af fólki og að lögreglan hefði haft samband við þau, því einhverjir hafa væntanlega tilkynnt þetta til lögreglu,“ segir hann. „Þetta er í besta falli vítavert gáleysi og stórhættulegt, því að ef einhver hefði verið labbandi þarna einhverra hluta vegna hefði hann fengið þetta yfir sig. Ég veit ekki hvað hefði gerst.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Glerbrotum ringdi inn í bílinn Hefnd Pútíns – skelfing hjá Dönum 15 ára í hálfs árs gæsluvarðhaldi Manchester United þarf að greiða 10 milljarða Trump og Selenskí ræddu saman Umræðan Að banka á brennandi dyr ESB Mótun manneskjumiðaðrar gervigreindar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mun hærra verð fæst nú fyrir grásleppuna Gervigreindina verði að nota í læknisfræði Kanadískir hermenn og íslenskir námsmenn takast á Nota um 30 tæki og geta kallað út fleiri Mest lesið Í gær Í vikunni Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Nýjast á mbl.is » Glerbrotum ringdi inn í bílinn Hefnd Pútíns – skelfing hjá Dönum 15 ára í hálfs árs gæsluvarðhaldi Manchester United þarf að greiða 10 milljarða Trump og Selenskí ræddu saman Umræðan Að banka á brennandi dyr ESB Mótun manneskjumiðaðrar gervigreindar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fangavörður grunaður um brot í starfi Versta veðrið á Reykjanesi og í Borgarfirði Helmingurinn neitaði að klappa Glassriver fær 277 milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Myndir: Ekkert lát á landrofinu og skiltin fjarlægð Sólveig um laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“ Brekkusöng Magnúsar lokið – tónlistinni ekki „Fólk lítur á hendurnar á mér“ „Margir sem taka bara verkjatöflur og halda alltaf áfram“ „Hvers vegna eru göturnar með djúpum hjólförum?“ 40 milljarða búhnykkur Þrjótar komust yfir menntaskólaeinkunnir Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu

Share this article