Innlent | mbl | 26.2.2026 | 12:07 | Uppfært 12:23 Mikið áhyggjuefni sem taka beri alvarlega Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ljóst að bregðast þurfi við. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Hver einasta mæling étur upp ráðstöfunartekjur“ Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Telur hættuna meiri nú » Fleiri tengdar fréttir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það mikið áhyggjuefni að verðbólga standi í stað og að atvinnuleysi hafi aukist um 2,8 prósentustig á milli mánaða. Upplausn geti orðið á vinnumarkaði í haust, fari verðbólgutölur ekki að lækka. „Hvort tveggja er mjög mikið áhyggjuefni sem okkur ber öllum að taka mjög alvarlega,“ segir Guðrún í samtali við mbl.is. „Við Íslendingar erum öll sammála um það að atvinnuleysi er eitt mesta böl sem hægt er að búa við og mér finnst þetta vera orðnar ískyggilega háar atvinnuleysistölur. Það er ljóst að það verður að bregðast við hvað það varðar.“ Atvinnuleysi reiknast árstíðaleiðrétt 7,3 prósent í janúar samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar sem birt var í gær. Atvinnuleysi jókst því um 2,8 prósentustig á milli mánaða og fór úr 4,5 prósentum í desember. Frétt af mbl.is Enn eykst atvinnuleysi Hætta á að kjarasamningum verði sagt upp Þá mælist tólf mánaða verðbólga nú 5,2 prósent og stendur í stað á milli mánaða, þvert á spár greiningardeilda bæði Landsbankans og Íslandsbanka. Spáð hafði verið hjöðnun á milli mánaða og að verðbólgan færi niður fyrir 5 prósent í febrúar. „Við sjálfstæðismenn vöruðum við því í lok síðasta árs í umræðu um fjárlög að ríkisstjórnin væri að fara í verðbólguhvetjandi aðgerðir, skattahækkanir og aukin útgjöld. Það er svo mikil nauðsyn að ná niður verðbólgu og til þess að svo megi verða, þá verða allir að bera ábyrgð og taka þátt í því. Við getum ekki varpað þeirri ábyrgð eingöngu á aðila vinnumarkaðarins eða á Seðlabankann. Ríkið þarf að stíga hér líka,“ segir Guðrún. Ríkið verði að draga úr útgjöldum. „Þess vegna gagnrýni ég það mjög harðlega að ríkisstjórnin fór í 143 milljarða útgjaldaaukningu á þessu ári. Þannig að ríkið verður að stíga fastar niður hvað það varðar.“ Segir Guðrún stöðuna mikið áhyggjuefni, sérstaklega í ljósi endurskoðunarákvæðis í kjarasamningum í haust. „Ef við förum ekki að sjá verðbólgutölur lækka er mikil hætta á því að kjarasamningum verði sagt upp og það verði upplausn á vinnumarkaði.“ Frétt af mbl.is Verðbólgan stendur í stað þvert á spár Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Hver einasta mæling étur upp ráðstöfunartekjur“ Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Telur hættuna meiri nú » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Hver einasta mæling étur upp ráðstöfunartekjur“ Yfirgaf völlinn í sjúkrabíl Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ Mikið áhyggjuefni sem taka beri alvarlega Kosningum flýtt í Danmörku Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Agi og festa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Helmingurinn neitaði að klappa Kostnaður við götuhreinsun eykst „Auðvitað er þessi staða ekki góð“ Glerbrotum rigndi inn í bílinn Mest lesið Í gær Í vikunni Smjörva skipt út á Landspítalanum Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Eina tilboðið langt yfir áætlun Minntust Kjartans í Garðakirkju Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Líkir borginni við ofskreytt jólatré Fullyrðingar standast ekki Myndskeið: Kristrún nefndi uppáhaldskennara dóttur sinnar Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Nýjast á mbl.is » „Hver einasta mæling étur upp ráðstöfunartekjur“ Yfirgaf völlinn í sjúkrabíl Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ Mikið áhyggjuefni sem taka beri alvarlega Kosningum flýtt í Danmörku Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Agi og festa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Árangurinn á Íslandi greiddi götuna Varar við inngöngu Íslands í ESB Hefnd Pútíns – skelfing hjá Dönum Minntust Kjartans í Garðakirkju Mest lesið Í gær Í vikunni Smjörva skipt út á Landspítalanum Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Eina tilboðið langt yfir áætlun Minntust Kjartans í Garðakirkju Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Líkir borginni við ofskreytt jólatré Fullyrðingar standast ekki Myndskeið: Kristrún nefndi uppáhaldskennara dóttur sinnar Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir