Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Gísli Rafn hættir hjá Rauða krossinum

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 14 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Gísli Rafn hættir hjá Rauða kross­in­um Brynjólfur Þór Guðmundsson Gísli Rafn Ólafsson er hættur sem framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands. Í tilkynningu frá samtökunum segir að samkomulag um þetta hafi náðst milli stjórnar og hans. Arna Harðardóttir fjármálastjóri tekur við verkefnum framkvæmdastjóra þar til eftirmaður Gísla Rafns hefur verið ráðinn. Gísli Rafn Ólafsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 22 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Toppi far­ald­urs­ins lík­lega náð Brynjólfur Þór Guðmundsson Síðustu fjórar vikur hafa þrettán að meðaltali greinst með inflúensu í hverri viku. Faraldurinn hófst fyrr í vetur en síðustu ár en virðist nú vera á undanhaldi. Flest voru smitin í vikunum fyrir jól en þau hafa verið mun færri það sem af er ári. Í síðustu viku greindust fimmtán með RS-veirusýkingu, flest voru smitin þremur vikum fyrr. Læknir sinnir gesti á heilsugæslu. Mynd úr safni. RÚV / Kristinn Þeyr Magnússon Fyrir 29 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Bjarni Guð­jóns­son orð­að­ur við sæti á lista Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík kynnir framboðslista sinn fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor á laugardaginn. Reikna má með róttækum breytingum á listanum frá því fyrir fjórum árum. Nafn Bjarna Guðjónssonar, fyrrverandi fótboltakappa, hefur verið nefnt, hann hefur nú sagt starfi sínu hjá VÍS lausu og er því talið líklegt að Bjarni muni taka öruggt sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í vor, jafnvel annað sætið. Bjarni Guðjónsson RÚV / Mummi Lú Fyrir 32 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Óman Bótox-skand­all í feg­urð­ar­sam­keppni úlf­alda Tuttugu úlfaldar voru dæmdir úr keppni í fegurðarsamkeppni úlfalda í Óman. Dómarar komust að þeirri niðurstöðu að úlfaldarnir hefðu gengist undir lýta- og fegrunaraðgerðir. Fyrir 32 mínútumÍÞRÓTTIR Körfubolti Orri sleit kross­band á lands­liðs­æf­ingu Íslenska karlalandsliðið í körfubolta varð fyrir mikilli blóðtöku þegar Orri Gunnarsson sleit krossband undir lok æfingar í Ásgarði í gær. Fyrir 47 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Von­brigði á von­brigði ofan og enn langt til lands Síðustu þrjár verðbólgumælingar Hagstofunnar hafa valdið sárum vonbrigðum. Verðbólgumarkmið seðlabankans og stýrivaxtalækkanir virðast órafjarri. Fyrir 49 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Auka við­bún­að við orku­inn­viði en segja enga sér­staka ógn steðja að Sænska sjónvarpsstöðin TV4 sagði í morgun að árás óvinveitts ríkis á orkuinnviði á Norðurlöndum væri yfirvofandi, og hafði þetta eftir heimildarmönnum sínum. Leyniþjónusta sænska hersins segir þó að engin sérstök ógn sé á bak við aukinn viðbúnað. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Dóms­mála­ráðu­neyt­ið skoðar kvart­an­ir undan hegðun lög­reglu­stjóra á Vest­fjörð­um á þorra­blóti Dómsmálaráðuneytið hefur til skoðunar kvartanir undan hegðun lögreglustjórans á Vestfjörðum á Stútungi, þorrablóti Flateyringa, fyrr í mánuðinum. Kvartanir bárust nefnd um eftirlit með störfum lögreglu sem vísaði þeim til ráðuneytisins. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Boðað til kosn­inga í Dan­mörku Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur tilkynnti í morgun að boðað verði til kosninga í mars. Þær áttu að fara fram í október í síðasta lagi. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Lavrov: Enginn loka­frest­ur til að ljúka stríð­inu Utanríkisráðherra Rússlands segir að ekkert liggi á að ná samkomulagi um að ljúka stríðinu í Úkraínu. Enginn sérstakur lokafrestur sé í þeim efnum, aðeins verkefni sem þurfi að leysa. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Brott­flutt­ir Grind­vík­ing­ar hafa rúman mánuð til að skrá sig á kjör­skrá í bænum Brottfluttir Grindvíkingar geta skráð sig á kjörskrá í bænum til 1. apríl. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál „...aldrei hefur for­seti logið jafn mikið…“ Danska blaðið Politiken sagði í leiðara að aldrei hefði forseti logið jafn mikið og gert jafn mikið til að sundra landi sínu og Trump Bandaríkjaforseti í State of the Union-ræðu sinni. Ræðan var til umfjöllunar í Heimsglugga vikunnar á Rás 1. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Jón Kalman og Eva Rún Snorra­dótt­ir til­nefnd til bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs Í dag var tilkynnt hvaða verk hljóta tilnefningu til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026. Tveir íslenskir höfundar hljóta tilnefningu, þau Eva Rún Snorradóttir fyrir Eldri konur og Jón Kalman fyrir Himintungl yfir heimsins ystu brún. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Tilboð Ic­elandair hátt í þre­föld upphæð áætl­aðs kostn­að­ar Icelandair bauðst til að taka að sér áætlunarflug milli Reykjavíkur og Ísafjarðar fyrir þrjá og hálfan milljarð. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 1,3 milljarða. Icelandair lagði fram eina tilboðið í útboðinu. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Versn­andi veð­ur­horf­ur við Faxa­flóa Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna norðvestanhríðar við Faxaflóa frá klukkan tvö síðdegis. Þegar eru í gildi viðvaranir við Breiðafjörð og á Vestfjörðum fram á kvöld. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Dæmdur fyrir að gefa eik­ar­h­auki áfengi Maður í Kaliforníu hefur verið dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir brot á dýraverndunarlögum. Hann gaf hauki sem er verndaður samkvæmt lögum áfengi. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Hrein­kálf­ur fæðist á Vín­landi í sumar og eykur mögu­leika á fullri tamn­ingu Hreinkálfur fæðist í mannheimum í sumar. Ómskoðun leiddi í ljós að hreinkvígan Sólhyrna í Fellum á von á sér. Það gæti orðið byrjun á fulltaminni hjörð, segir eigandi Hreindýragarðsins. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tvö berj­ast um odd­vita­sæt­ið hjá Píröt­um Prófkjör Pírata í Reykjavík er hafið og stendur í rúma viku. Sitjandi borgarfulltrúi og varaborgarfulltrúi vilja bæði fyrsta sætið. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálf­stæð­is­menn búnir að raða á lista á Ísa­firði Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði hefur verið samþykktur. Miklar breytingar eru á listanum og nýtt fólk í efstu sætum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Ölv­að­ur maður reyndi að kyssa fatl­aða konu og neit­aði að fara Karlmaður sem reyndi að kyssa konu og neitaði að fara út úr íbúð hennar var dæmdur fyrir húsbrot. Þetta þótti ekki kynferðileg áreitni þar sem talið var að hann hefði ætlað að kyssa konuna bless. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Einar Jó­hann­es leiðir lista Mið­flokks­ins í Kópa­vogi Brynjólfur Þór Guðmundsson Einar Jóhannes Guðnason Mynd / Aðsend Einar Jóhannes Guðnason hefur verið valinn oddviti Miðflokksins í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Hann er varaþingmaður flokksins í Suðvesturkjördæmi. Unnið er að röðun í önnur sæti og verður tilkynnt um fimm efstu sætin í næstu viku. Einar Jóhannes hefur verið rekstrar- og sölustjóri hjá eloomi, Maze og 50skills. Hann hefur setið í stjórn Miðflokksdeildar Kópavogs, stjórn flokksins í Suðvesturkjördæmi og í nefnd um innra starf flokksins. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Skíði Frida Karls­son hættir á næsta ári Sænska skíðadrottningin Frida Karlsson sem yfirgaf Vetrarólympíuleikana í Mílanó og Cortina með tvenn gullverðlaun og ein silfurverðlaun hefur gefið það út að árið 2027 ætlar hún að hætta skíðaiðkun. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Þor­steinn hættir hjá Deloitte Stjórn Deloitte hefur hafið leit að nýjum forstjóra eftir að samkomulag náðist milli hennar og Þorsteins Péturs Guðjónssonar um að hann léti af störfum. Þorsteinn var ákærður fyrir kynferðisbrot en sýknaður af ákærunni. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Verð­bólga stend­ur í stað Verðbólgan var 5,2 prósent í febrúar, annan mánuðinn í röð. Hún fór yfir fimm prósent í síðasta mánuði og hafði þá ekki mælst meiri í rúmlega ár. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Japan Fæð­ing­um í Japan fækkar tíunda árið í röð Fæðingum í Japan fækkaði í fyrra, tíunda árið í röð. Lýðfræðilegar breytingar ógna efnahag ríkisins þar sem meðalaldur stígur stöðugt. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússar skutu á fimmta hund­rað eld­flaug­um og drónum að Úkra­ínu Brynjólfur Þór Guðmundsson Rússar skutu 39 eldflaugum og 420 drónum að borgaralegum skotmörkum í Úkraínu í nótt, sagði Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, í morgun. Drónunum og eldflaugunum var beint að fjölda borga og bæja í Úkraínu, þar á meðal höfuðborginni Kyiv og Kharkív. 23 særðust í árásum Rússa í nótt, þar á meðal sjö ára drengur, samkvæmt upplýsingum frá úkraínskum yfirvöldum. Úkraínumenn minntust þess í fyrradag að fjögur ár væru frá upphafi stríðsins. AP / Dan Bashakov Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Erlent vinnu­afl er illa nýtt hér á landi að mati BHM BHM segir erlent vinnuafl vera illa nýtt hér á landi og að stjórnvöld og atvinnulíf þurfi að gera betur. Nauðsynlegt sé að laða innflytjendur að íslenskum vinnumarkaði. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vinnumarkaður Mun meira at­vinnu­leysi sam­kvæmt tölum Hag­stof­unn­ar en Vinnu­mála­stofn­un­ar Atvinnuleysi í janúar var 7,3 prósent samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar, sem spyr fólk út í stöðu sína á vinnumarkaði. 4,9 prósent voru atvinnulaus samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar sem heldur utan um formlega atvinnuleysisskrá. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Víða erfið færð að morgni Vetrarfærð er víða um land. Þungfærð eða þæfingsfærð er víða á norðvestanverðu landinu. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Rán Flyg­en­ring fer helst ekki í sturtu heima hjá sér og gefur út bók um sund­menn­ingu „Er þetta ekki það sem við erum að leita að? Samfélag, hittast og tala saman. Þetta er einhver lykill,“ segir Rán Flygenring sem gefur út safn teikninga af baðstöðum landsins sem er í senn handbók fyrir ferðamenn. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hvass­viðri og vara­söm akst­urs­skil­yrði Hríðarveður verður við Breiðafjörð og á Vestfjörðum í dag og akstursskilyrði varasöm. Vætusamt verður á sunnanverðu landin

Share this article