Innlent | mbl | 26.2.2026 | 16:33 Dómur yfir Steinu staðfestur í Landsrétti Steina Árnadóttir hjúkrunarfræðingur við aðalmeðferð málsins í héraði 2024. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir hjúkrunarfræðingnum Steinu Árnadóttur sem var dæmd fyrir að valda dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans árið 2021. Steina var sakfelld í héraði í desember 2024 en henni var þó ekki gerð refsing. Var það í annað sinn sem héraðsdómur tók mál Steinu til meðferðar en hún var í fyrstu sýknuð þar sem héraðsdómur taldi sannað að það hefði ekki verið ásetningur hennar að verða sjúklingnum að bana. Steina var ákærð fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn með því að hafa á Landspítalanum, þar sem hún starfaði sem hjúkrunarfræðingur, svipt sjúkling lífi með því að þröngva ofan í hana innihaldi úr tveimur flöskum af næringardrykk. Sagði í ákæru að Steina hefði hellt drykknum upp í munn konunnar á meðan henni var haldið að fyrirskipan Steinu, þrátt fyrir að konan gæfi til kynna að hún vildi ekki drykkinn, allt með þeim afleiðingum að drykkurinn hafnaði í loftvegi hennar, sem hindraði loftflæði um lungun og olli öndunarbilun svo að konan kafnaði. Var háttsemin í ákæru talin varða við 211. gr., sbr. 138. gr. almennra hegningarlaga og 1. mgr. 13. gr., sbr. 28. gr., laga um heilbrigðisstarfsmenn. Frétt af mbl.is Sýndi af sér stórfellt gáleysi Framburður vitna metinn trúverðugur Í dómi Landsréttar var framburður þriggja vitna að atvikinu metinn mun trúverðugri en framburður Steinu og talið hafið yfir skynsamlegan vafa að umrætt sinn hefði Steina þröngvað næringardrykk ofan í sjúklinginn með þeim hætti sem lýst væri í ákæru. Þá þótti miðað við gögn málsins og framburð vitna, og þrátt fyrir að mörk væru á því vægi sem skýrslu um útvíkkaða réttarkrufningu yrði gefið við sönnunarmat, hafið yfir skynsamlegan vafa að með háttsemi sinni hefði Steina svipt sjúklinginn lífi og þá með þeim hætti sem lýst væri í ákæru. Þrátt fyrir að ýmis atriði sem Steina bæri ekki ábyrgð á hefðu stuðlað að því að atvikið gat átt sér stað og haft áhrif á rás atburða breyttu þau því ekki að ákæra málsins tæki til nánar tiltekinnar háttsemi Steinu, er haft hefði nánar tilteknar afleiðingar, og teldust bæði háttsemin og afleiðingar hennar sannaðar. Frétt af mbl.is „Líf mitt er búið” Ósannað að Steina hafi haft ásetning til að svipta sjúklinginn lífi Ósannað þótti að Steina hefði haft ásetning til að svipta sjúklinginn lífi og var því brot hennar ekki fært undir 211. gr. hegningarlaga. Þá var ekki talið unnt að staðhæfa að í háttsemi Steinu hefði falist vísvitandi stórfelld líkamsárás sem færð yrði undir 2. mgr. 218. gr. sömu laga. S var á hinn bóginn sakfelld fyrir brot gegn 215. gr. laganna, enda hefði hún sýnt af sér gáleysi með háttseminni. Þá var hún einnig sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 13. gr., sbr. 28. gr., laga nr. 34/2012. Gert að greiða 2,8 milljónir í bætur Rúmt ár var liðið síðan hinn áfrýjaði dómur gekk í héraði og talsvert á fimmta ár síðan atvik gerðust. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var sú niðurstaða staðfest að fresta ákvörðun refsingar ákærðu skilorðsbundið í tvö ár, að því er segir í dómi Landsréttar. Jafnframt var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að Steina bæri að greiða dánarbúi Guðrúnar Sigurðardóttur 2.760.884 krónur ásamt nánar tilgreindum vöxtum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ætlar að verða markvörður númer eitt hjá United Fært til lendingar í Keflavík á ný Dómur yfir Steinu staðfestur í Landsrétti „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Húsvíkingar daga lið sitt úr keppni Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Agi og festa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kostnaður við götuhreinsun eykst Kosningum flýtt í Danmörku Árangurinn á Íslandi greiddi götuna Musk tók rússneska herinn úr sambandi: Hvað svo? Mest lesið Í gær Í vikunni Smjörva skipt út á Landspítalanum Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu Eina tilboðið langt yfir áætlun Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Smjörva skipt út á Landspítalanum Nýjast á mbl.is » Ætlar að verða markvörður númer eitt hjá United Fært til lendingar í Keflavík á ný Dómur yfir Steinu staðfestur í Landsrétti „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Húsvíkingar daga lið sitt úr keppni Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Agi og festa Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Smjörva skipt út á Landspítalanum Sterk skilaboð frá Tusk Vegagerðin skoðar breytingar eftir atvikið í gær Musk tók rússneska herinn úr sambandi: Hvað svo? Mest lesið Í gær Í vikunni Smjörva skipt út á Landspítalanum Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu Eina tilboðið langt yfir áætlun Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Smjörva skipt út á Landspítalanum