Flugvél með nýjar áhafnir lenti á Akureyrarflugvelli rétt í þessu. Þetta segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. Fjórar flugvélar Icelandair þurftu í dag að lenda á Akureyri vegna slæmra veðurskilyrða við Keflavíkurflugvöll. Áhafnir flugvélanna runnu út á tíma og þurfti því að senda nýjar áhafnir norður svo hægt væri að fljúga vélunum til Keflavíkur. Flugvélarnar lentu á Akureyri í kringum hálf fimm í dag en farþegum var ekki hleypt út fyrr en um níu. Þeir þurftu því að dvelja um borð í vélunum í um fjórar klukkustundir. Að sögn Guðna geta flugvélarnar brátt flogið til Keflavíkur, ein af annarri, með nýjum áhöfnum. Flugvélarnar þarf að afísa og það gæti liðið um hálftími á milli brottfara vélanna fjögurra. Flugvélarnar tvær sem lentu á Reykjavíkurflugvelli tóku á loft til Keflavíkur klukkan korter yfir sjö og hálf átta.