Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Algjört þrekvirki hjá starfsfólki

Read Full Article →

Innlent | mbl | 27.2.2026 | 17:50 Algjört þrekvirki hjá starfsfólki Átta vélar Icelandair bíða á Akureyrarflugvelli eftir að komast í loftið. Ljósmynd/Gylfi Gylfason Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Síðustu vélar Icelandair, sem áttu að lenda í Keflavík um miðjan daginn í gær, skiluðu sér frá Akureyri í nótt með farþega frá Evrópu. Arnar Már Magnússon, framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair, segir að allar vélar hafi verið komnar til baka til Keflavíkur um tvöleytið í nótt eftir að flugfélagið hafði þurft að senda Dash 8-flugvél með nýjar áhafnir innanborðs fyrir fjórar síðustu vélarnar en áhafnir þeirra runnu út á tíma. „Það tekur tíma að undirbúa flugin aftur til Keflavíkur og það eru náttúrulega hámörk á flug- og flugvaktareglum. Þannig að við vorum einfaldlega komin á þann stað að við vildum og þurftum að skipta út áhöfnum sem voru búnar að nýta alla sína vakt.“ Frétt af mbl.is Síðustu vélarnar í loftið í nótt Hár vindhraði og mikill éljabakki Nýjar áhafnir flugu með síðustu vélunum til Keflavíkur svo allar vélar félagsins skiluðu sér í tæka tíð þangað og áætlun dagsins í dag stóðst upp á punkt og prik. „Það er náttúrulega algjört þrekvirki hjá starfsfólki að ná að snúa þessu svona hratt við og tryggja að áætlunin standist,“ segir Arnar. Hann segir aðstæðurnar sem sköpuðust í Keflavík í gær ekki alvanalegar. Skyndileg breyting hafi orðið á veðuraðstæðum, akkúrat í glugganum, þegar vélarnar voru að koma inn. Á um hálfri klukkustund hafi hitastigið lækkað um 6 gráður og fallið úr 5 gráðum niður í mínus 1. Lítið þrumuský (CB-ský) hafi valdið því að loftið steyptist niður og myndaði háan vindhraða og mikinn éljabakka. Það hafi valdið lélegu skyggni og mikilli ísingu á brautunum þannig að skilyrði til lendingar voru afleit. Frétt af mbl.is Farþegar þurfa að bíða í vélunum Öryggið fram yfir allt Nægur tími var til stefnu en vélarnar voru að sögn Arnars um 20 til 40 mínútum frá áætluðum lendingartíma. Þær fóru þá í biðflug til að byrja með en að 15 til 45 mínútum liðnum var ákveðið að notast við varaflugvellina þrjá. Átta vélar lentu á Akureyri, fimm í Reykjavík og 2 á Egilsstöðum. „Við vissum að það væri möguleiki á einhvers konar röskunum og vorum náttúrulega með auka eldsneyti um borð og eins og við erum alltaf fyrir svona tilfelli. Arnar segir biðflugið fara þannig fram að það sé fyrir fram skilgreindur biðflugsstaður þar sem menn fljúga í hringi í mismunandi hæð. „Þetta er allt kortlagt og er til á útgefnum kortum, í tölvukerfinu og í flugstjórnarklefanum.“ Ferðalag farþeganna sem lentu á Akureyri og þurftu að bíða eftir nýrri áhöfn lengdist mest en Arnar segir að ákveðið hafi verið að hleypa þeim frá borði þegar vitað var að áhafnaskipti þyrftu að fara fram. „Það er reynt að gera það besta úr erfiðum aðstæðum og okkur þykir alltaf miður þegar við náum ekki að skila farþegunum á hárréttum tíma. En þegar staðan er þessi verðum við að taka öryggið fram fyrir allt. Það er fyrst og fremst okkar hlutverk.“ Frétt af mbl.is Fært til lendingar í Keflavík á ný Frétt af mbl.is Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Spá 5% atvinnuleysi á næsta ári Frábært að hafa hann hér Jakkinn sem rýkur úr verslunum Algjört þrekvirki hjá starfsfólki Áfall fyrir bikarúrslitaleikinn? Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fullt tilefni til að hafa áhyggjur „Fólk tjaldar inni hjá sér“ Fjöldi útkalla: Strætó fór út af á Holtavörðuheiði Myndir: „Jaðrar við ofbeldi gagnvart nemendunum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Fólk flutt sjóleiðina eftir að vegurinn varð ófær 420 milljónir fyrir Toppstöðina Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Nýjast á mbl.is » Spá 5% atvinnuleysi á næsta ári Frábært að hafa hann hér Jakkinn sem rýkur úr verslunum Algjört þrekvirki hjá starfsfólki Áfall fyrir bikarúrslitaleikinn? Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Hvetja starfsfólk til að yfirgefa Ísrael í dag Útséð um að vaxtalækkunarferli haldi áfram Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Mest lesið Í gær Í vikunni Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Fólk flutt sjóleiðina eftir að vegurinn varð ófær 420 milljónir fyrir Toppstöðina Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál

Share this article