Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Samfylkingin með 30% fylgi og Miðflokkurinn 20%

Read Full Article →

Innlent | mbl | 27.2.2026 | 9:09 Samfylkingin með 30% fylgi og Miðflokkurinn 20% Samfylkingin er með mesta fylgið og Miðflokkurinn kemur þar rétt á eftir. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Samfylkingin og Miðflokkurinn eru með mesta fylgið ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar Prósents sem framkvæmd var dagana 21. janúar til 16. febrúar. Þátttakendur voru spurðir: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Af þeim sem tóku afstöðu myndu 30,1% kjósa Samfylkinguna, 19,6% Miðflokkinn, 13,7% Sjálfstæðisflokkinn, 13,5% Viðreisn, 7,7% Flokk fólksins, 5,9% Framsóknarflokkinn, 3,6% Pírata, 3,3% Vinstri græn 2,4% Sósíalistaflokkinn og 0,2% Lýðræðisflokkinn. Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Svör þeirra sem tóku afstöðu. Ljósmynd/Aðsend Konur líklegri til að kjósa Samfylkinguna og karlar Miðflokkinn Netkönnun var lögð fyrir 3.900 einstaklinga. Svarhlutfallið var 50%. Í könnunarhópi Prósents eru um 15.000 einstaklingar 18 ára og eldri af öllu landinu. Sendar eru út kannanir á handahófskennt úrtak úr könnunarhópnum og eru niðurstöður vigtaðar út frá kyni, aldri og búsetu svo hægt sé að alhæfa um þær með 95% vissu. Ef niðurstöður eru skoðaðar eftir kyni er fylgi Samfylkingarinnar marktækt meira hjá konum en körlum, eða 34% á móti 26%, og fylgi Miðflokksins marktækt meira hjá körlum en konum, eða 25% á móti 13%. Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Svör eftir kyni. Ljósmynd/Aðsend Ef niðurstöður eru skoðaðar út frá aldri er fylgi Viðreisnar marktækt meira hjá einstaklingum á aldrinum 35 til 54 ára en hjá öðrum aldurshópum. Fylgi Framsóknarflokksins er marktækt meira hjá 25 til 34 ára en 18 til 24 ára. Fylgi Flokks fólksins er marktækt meira hjá 55 ára og eldri en hjá þeim sem yngri eru og fylgi Pírata er marktækt meira hjá 18-24 ára en hjá þeim sem eru 35 ára og eldri. Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Svör eftir aldri. Ljósmynd/Aðsend Fylgi Samfylkingarinnar meira í Reykjavík Ef niðurstöður eru skoðaðar út frá búsetu er fylgi Samfylkingarinnar marktækt meira hjá þeim sem búa í Reykjavík en hjá þeim sem búa í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur og á landsbyggðinni. Fylgi Miðflokksins er marktækt meira hjá þeim sem búa í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur en hjá þeim sem búa á landsbyggðinni eða í Reykjavík. Fylgi Viðreisnar er marktækt meira hjá þeim sem búa í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum en hjá þeim sem búa á landsbyggðinni. Fylgi Flokk fólksins er marktækt meira hjá þeim sem búa á landsbyggðinni en hjá þeim sem búa í Reykjavík og í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur. Fylgi Framsóknarflokksins er marktækt meira hjá þeim sem búa á landsbyggðinni en hjá þeim sem búa í Reykjavík eða nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur. Fylgi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs er marktækt meira í Reykjavík en í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur og fylgi Sósíalistaflokksins er marktækt meira í Reykjavík en í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur og á landsbyggðinni. Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Svör eftir búsetu. Ljósmynd/Aðsend Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þjóðverjinn gæti tekið við United Samfylkingin með 30% fylgi og Miðflokkurinn 20% Mikilvægt að opna á umræðu um sorgina Köstuðu flugeldum í leikmenn Búið að opna Holtavörðuheiðina Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjöldi útkalla: Strætó fór út af á Holtavörðuheiði Fært til lendingar í Keflavík á ný Lögreglan varar við fíkniefninu Kratom Kosningum flýtt í Danmörku Mest lesið Í gær Í vikunni Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög Fullt tilefni til að hafa áhyggjur „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Síðustu vélarnar í loftið í nótt Óútgefin prófskírteini til sýnis í Háskóla Íslands Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Byggja á síðustu sjávarlóðinni á Seltjarnarnesi Dóra fékk ekki sæti á listanum Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Nýjast á mbl.is » Þjóðverjinn gæti tekið við United Samfylkingin með 30% fylgi og Miðflokkurinn 20% Mikilvægt að opna á umræðu um sorgina Köstuðu flugeldum í leikmenn Búið að opna Holtavörðuheiðina Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kosningum flýtt í Danmörku Fjöldi útkalla: Strætó fór út af á Holtavörðuheiði Óviss um öryggi barna og gagnrýnir Veðurstofuna Smjörva skipt út á Landspítalanum Mest lesið Í gær Í vikunni Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög Fullt tilefni til að hafa áhyggjur „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Síðustu vélarnar í loftið í nótt Óútgefin prófskírteini til sýnis í Háskóla Íslands Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Byggja á síðustu sjávarlóðinni á Seltjarnarnesi Dóra fékk ekki sæti á listanum Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál

Share this article