Samfylkingin mælist sem fyrr með mest fylgi allra flokka og Miðflokkurinn er næststærstur samkvæmt nýrri skoðanakönnun Prósents. Samfylkingin fengi 30,1 prósent atkvæða ef kosið væri nú, samkvæmt könnuninni en mældist með 32,0 prósent í síðustu könnun Prósents í október. Miðflokkurinn hefur verið í mikilli sókn síðustu mánuði og segjast nú 19,6 prósent myndu kjósa hann en 9,9 prósent lýstu því yfir í októberkönnuninni. Sjálfstæðisflokkurinn (13,7 prósent) og Viðreisn (13,5 prósent) njóta svo að segja jafn mikils fylgis. Sjálfstæðisflokkurinn mældist með 18,3 prósent í október og Viðreisn með 14,4 prósent. Aðrir flokkar eru allir undir tíu prósentum. 7,7 prósent myndu segjast myndu kjósa Flokk fólksins og 5,9 prósent Framsóknarflokkinn. Aðrir flokkar næðu ekki inn á þing. Það eru Píratar (3,6 prósent), Vinstri græn (3,3 prósent), Sósíalistaflokkurinn (2,4 prósent) og Lýðræðisflokkurinn (0,2 prósent). Samfylkingin nýtur mests fylgis í öllum aldurshópum en Miðflokkurinn á litlu minna fylgi að fagna meðal yngstu kjósendanna. Samfylkingin er með mest fylgi allra flokka bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni. Í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur mælast Samfylkingin og Miðflokkurinn stærst, með 26 prósenta fylgi hvor flokkur. Sterkustu stöðu Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar er að finna í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur og Flokkur fólksins og Framsókn eiga mestu fylgi að fagna á landsbyggðinni. Mun fleiri konur (36 prósent) en karlar (26 prósent) kjósa Samfylkinguna en þessu er öfugt farið hjá Miðflokknum sem nýtur stuðnings 25 prósenta karla og þrettán prósenta kvenna. Könnunin var gerð á netinu 21. janúar til 16. febrúar. Úrtakið var 3.900 manns í könnunarhópi Prósents og svarhlutfallið 50%.