Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Miðflokkurinn og Vinstrið sækja fram

Read Full Article →

Talsverðar hrókeringar eru á fylgi flokkanna í borginni samkvæmt nýrri könnun Gallup. Bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin tapa fylgi, en flokkarnir mælast nú jafn stórir með 26,4% fylgi. Fyrir utan Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna er mesti munurinn á milli kannanna hjá Vinstrinu, sameiginlegu framboði Vinstri grænna og Vors til vinstri. Í síðustu könnun mældust VG og Vor til vinstri með samanlagt 4,9% fylgi en nú er Vinstrið komið upp í 8,7% fylgi, sem skilar þeim tveimur fulltrúum. Miðflokkurinn bætir einnig við sig, mælist með 11,3% fylgi og hefur aldrei mælst stærri. Miðað við þá niðurstöðu er Miðflokkurinn þriðji stærsti flokkurinn í borginni og myndi fá 3 borgarfulltrúa ef gengið yrði til kosninga í dag. Framsóknarflokkurinn bætir við sig og mælist nú með 4,6%, en fylgið var síðast meira í mars 2025. Það myndi skila flokknum einum borgarfulltrúa en síðustu tvær kannanir hefur Framsókn mælst úti. Flokkur fólksins mælist með 4% fylgi, sem er nær tvöfalt meira en í síðustu könnun, og myndi því fá einn fulltrúa. Píratar og Sósíalistaflokkurinn missa aftur á móti sína fulltrúa. Sósíalistaflokkurinn, sem er í dag með 2 borgarfulltrúa, mælist einungis með 3,1% fylgi. Píratar, sem fékk 3 borgarfulltrúa í síðustu kosningum, mælist með 3,7% fylgi en þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn mælist úti. Okkar borg, sem er nýtt framboð, mælist þá með 1,2% fylgi. Marktækur munur er á fylgi allra flokka nema Viðreisnar, sem mælist með 10,7% fylgi sem skilar flokknum tveimur borgarfulltrúum. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu , sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article