Bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin tapa fylgi samkvæmt nýrri könnun Gallup fyrir Viðskiptablaðið. Flokkarnir mælast nú jafn stórir og myndu miðað við könnunina fá 7 borgarfulltrúa hvor. Miðflokkurinn hefur aldrei mælst stærri og myndi miðað við könnunina fá 3 borgarfulltrúa. Píratar og Sósíalistaflokkurinn tapa sínum fulltrúum á meðan Vinstrið vex. Ef horft er til lýðfræðilegra þátta á borð við búsetu og aldur sést að nokkur hreyfing er á fylgi flokkanna. Ef horft er til búsetu sést að Sjálfstæðisflokkurinn tapar talsverðu fylgi í hverfum 104 (Laugardal), 109/111 (Breiðholti) og 110/113 (Árbæ og Grafarholti og Úlfarsárdal), eða um 13,2-14,1%. Flokkurinn bætir aftur á móti við sig 10,8% fylgi í hverfi 101/102 (Miðborg og Vatnsmýri og Skerjafirði), en er stærstur í 112 (Grafarvogi) með 37,7% fylgi. Samfylkingin tapar aftur á móti mestu fylgi í 101/102, eða um 11,4%. Flokkurinn er stærstur í 107 (Vesturbæ), með 38,2% fylgi. Miðflokkurinn bætir helst við sig fylgi í hverfum 103/108 (Háaleitis- og Bústaðahverfi og Múlum) og 104 en er með mesta fylgið í 112, um 17,5%. Vinstrið eykur fylgi sitt í flestum hverfum, mest í 101/102 um 9,6% og er flokkurinn stærstur þar með 15,2% fylgi. Viðreisn tapar fylgi í 103/108 en bætir við sig í 110/113 og er með mest fylgi þar. Framsóknarflokkurinn eykur helst við fylgið sitt í 112, um 7%, en er með mesta fylgið í 109/111, um 9,2%. Flokkur fólksins bætir við sig í 109/111 og 110/113, um 4,4-4,7%, og er með mesta fylgið í síðarnefnda hverfinu, um 9%. Píratar tapa helst fylgi í 105 (Hlíðum), um 5%, en eru með mesta fylgið í 112, um 6,7%. Sósíalistar tapa helst fylgi í 112, um 4%, en eru með mesta fylgið í 109/111, um 5,5%. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .