Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vinstrið tekur fylgi frá þeim stærstu

Read Full Article →

Bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin tapa fylgi milli mánaða samkvæmt könnun Gallup fyrir Viðskiptablaðið. Flokkarnir mælast nú jafn stórir og myndu samkvæmt könnuninni fá 7 borgarfulltrúa hvor. Miðflokkurinn hefur aldrei mælst stærri og myndi miðað við könnunina fá 3 borgarfulltrúa. Píratar og Sósíalistaflokkurinn tapa sínum fulltrúum á meðan Vinstrið vex. Ef horft er til lýðfræðilegra þátta á borð við búsetu og aldur sést að nokkur hreyfing er á fylgi flokkanna. Hvað aldur varðar sést að Sjálfstæðisflokkurinn tapar mestu fylgi meðal þeirra elstu, þar af 10,2% meðal 70 ára og eldri. Samfylkingin tapar aftur á móti mestu fylgi meðal yngstu kynslóðarinnar, mest meðal 18-29 ára eða um 11,4%. Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur meðal 60-69 ára með 36,1% fylgi en Samfylkingin er stærst meðal 70 ára og eldri, með 33,2% fylgi. Vinstrið virðist taka hluta fylgisins sem flokkarnir tapa og bætir við sig 7,3% fylgi meðal 70 ára og eldri og 5% meðal 18-29 ára. Fylgi flokksins er mest meðal síðarnefnda hópsins, eða um 13,2%. Miðflokkurinn ­bætir helst við sig fylgi meðal 30-39 ára, eða um 4,6%, og mælist flokkurinn með 17,7% fylgi meðal þess hóps. Viðreisn bætir við sig fylgi meðal yngri einstaklinga en tapar fylgi meðal 40-49 ára. Mest er fylgi flokksins ­meðal 30-39 ára, 15,5%. Framsóknarflokkurinn ­eykur helst við fylgi sitt meðal 18-29 ára og 50-59 ára, um 5,5-6,2%. Flokkur fólksins eykur helst við fylgi sitt meðal 40-49 ára, um 5,8%. Píratar tapa aftur á móti helst fylgi meðal 18-29 ára, um 3,6%, en eru með mesta fylgið meðal 30-39 ára, um 11%. Sósíalistar tapa helst fylgi meðal 30-39 ára og 50-59 ára, um 2,9-3,2%, en er með mesta fylgið meðal 18-29 ára, um 8,6%. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article