Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Líf og Bjarnheiður efstar á lista Sjálfstæðisflokksins

Read Full Article →

Sjálfstæðismenn á Akranesi samþykktu í gærkvöld framboðslista sinn fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Líf Lárusdóttir, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs, leiðir listann eins og í síðustu kosningum. Bjarnheiður Hallsdóttir framkvæmdastjóri kemur ný inn í bæjarmálin. Hún var áður formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Guðmundur Ingþór Guðjónsson, lögreglumaður og bæjarfulltrúi, skipar þriðja sætið og Viktor Elvar Viktorsson húsasmiður er í því fjórða. Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá bæjarfulltrúa í síðustu kosningum og hefur myndað meirihluta með Samfylkingunni í bæjarstjórn.

Share this article