Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði samþykktu framboðslista fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor á fundi sínum í gærkvöldi. Kosið var í sex efstu sætin í prófkjöri í síðasta mánuði en uppröðun var í önnur sæti. Á fundinum í gær var tilkynnt að Margrét Vala Marteinsdóttir, sem var kosin í bæjarstjórn fyrir Framsóknarflokkinn í síðustu kosningum, væri gengin til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hún verður í tíunda sæti. Orri Björnsson er oddviti flokksins og náði kjöri sem slíkur í prófkjörinu. Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti flokksins til margra ára og fyrrverandi bæjarstjóri, sagði af sér í vetur til að einbeita sér að þingstörfum. Sjálfstæðisflokkurinn fékk fjóra bæjarfulltrúa kjörna í síðustu kosningum og er í meirihlutasamstarfi við Framsóknarflokkinn, þaðan sem Sjálfstæðismönnum bættist liðsstyrkur í gær.