Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

21 milljarðs gjaldþrot Play

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 27.2.2026 | 15:40 21 milljarðs gjaldþrot Play Frá skiptafundinum fyrr í dag. Arnar er sitjandi lengst til hægri á myndinni. Eggert Jóhannesson Þóroddur Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Flugfélagið Play Skiptafundur Play í dag Hafa ekki verið færri í októbermánuði síðan 2022 Lengri tímarammi hefði bjargað Tango Tango Travel hættir vegna falls Play „Þetta er dýr brandari en það skiptir engu máli“ » Fleiri tengdar fréttir Kröfuhafar í bú lággjaldaflugfélagsins Play, sem varð gjaldþrota 30. september sl., eru 1.786 talsins. Heildarfjárhæð krafna nam 21 milljarði króna. Kröfulýsingarfresti lauk 2. febrúar sl. og kröfuskrá lá fyrir 18. febrúar en í henni er tekin afstaða til krafna í búið. Þetta kom fram á fyrsta skiptafundi þrotabúsins sem haldinn var á Hilton Reykjavik Nordica-hótelinu á Suðurlandsbraut 2 fyrr í dag. Eggert Jóhannesson Eins og greint var frá í fréttum misstu 400 manns vinnuna við gjaldþrotið og ferðaáætlanir þúsunda farþega fóru í uppnám. Almennar kröfur flestar Arnar Þór Stefánsson skiptastjóri segir í samtali við mbl.is að langstærsti hluti krafnanna séu svokallaðar almennar kröfur en mjög ósennilegt er að hans sögn að eitthvað fáist upp í þær. Play varð gjaldþrota 30. september sl. Morgunblaðið/Árni Sæberg Almennar kröfur eru aftan við forgangskröfur. Þær eru m.a. frá fólki sem keypti farmiða, mikið til útlendingum sem virðast hafa þurft að lýsa kröfum í búið til að fá miðana endurgreidda frá bönkum í sínum heimalöndum, en einnig birgjum, þjónustuaðilum og öðrum, að sögn Arnars. 2,2 milljarða stjórnvaldssekt Hluti af almennum kröfum er einnig 2,2 milljarða króna stjórnvaldssekt sem lögð var á félagið af Umhverfis- og orkustofnun eftir að því tókst ekki að kaupa tiltekinn fjölda ETS – eininga (Emission Trading System) en ETS er losunarkerfi Evrópusambandsins. Arnar ræðir við gesti. Eggert Jóhannesson Arnar segir að flugfélagið hafi þurft að afla sér ETS eininga fyrir 1. október 2025 en varð gjaldþrota fyrir þann tíma. Við það var lögð stjórnvaldssekt á félagið sem þá tilheyrði þrotabúinu. Sektin er mun hærri en kostnaðurinn við ETS-einingarnar að sögn Arnars. Eggert Jóhannesson Spurður um einstaka kröfuhafa aðra en þá almennu segir Arnar að þar megi nefna til dæmis veðkröfur frá skuldabréfaeigendum sem keyptu bréf af félaginu og tóku veð á móti, skömmu fyrir gjaldþrotið fyrir samtals 2,8 milljarða króna. Í þessum hópi er t.d. lífeyrissjóðurinn Birta eins og áður hefur komið fram í fréttum. Arnar segir að sumum þessara veðkrafna hafi verið hafnað og mögulega endi þær fyrir dómstólum. Eggert Jóhannesson Þá gerði flugvallarþjónustufyrirtækið Airport Associates veðkröfu í varahluti en henni var hafnað af búinu og gæti einnig endað fyrir dómi, en áður fer hún í svokallaðan ágreiningsfasa þar sem leitað er sátta. Ekki miklar eignir Spurður að því hvernig gangi að finna peninga í búinu til að greiða kröfuhöfum segir Arnar það ganga ágætlega, þó að eignirnar séu ekki miklar. Eggert Jóhannesson Helstu eignir eru að hans sögn ábyrgðir sem ekki var gengið að, til dæmis handveðsettir reikningar í Arion banka og vextir. Þá megi nefna tryggingar sem félagið lagði til víða um heim, á flugvöllum og fleiri stöðum. Þeir peningar fáist endurgreiddir. Eggert Jóhannesson Þá hafi sala á lausafé eins og stólum, borðum, frystigámi, söluvarningi fyrir flugvélar, fatalager, lyftara o.fl. gengið vel. Engar flugvélar eru hluti af þrotabúinu enda voru þær allar á leigu og hurfu af landinu við gjaldþrotið. Hluthafar tapa öllu sínu eins og lög gera ráð fyrir þegar hlutafélag fer á hausinn. Óleyst mál hjá SKE Arnar Þór segir að ýmis mál séu óleyst eftir gjaldþrotið. Þar á meðal eru kvartanir Play til Samkeppniseftirlitsins vegna yfirlýsinga Jóns Þórs Þorvaldssonar, formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna og flugstjóra hjá Icelandair, í byrjun september sem ollu að sögn forsvarsmanna Play hruni í miðasölu og hafi þannig stuðlað að gjaldþrotinu, og ósanngjarns vildarkerfis Icelandair. „Þetta er til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu og þrotabúið mun fylgja eftir mögulegum skaðabótakröfum.“ Þá segir Arnar að lokum að búið sé að ráða inn sérfræðing til að rýna í fyrrnefnt skuldabréfaútboð, hvert peningarnir hafi farið, hvort og hvenær Play hafi verið orðið ógjaldfært og hvort tilefni sé til riftunar á ráðstöfunum í aðdraganda gjaldþrotsins. Tengdar fréttir Flugfélagið Play Skiptafundur Play í dag Hafa ekki verið færri í októbermánuði síðan 2022 Lengri tímarammi hefði bjargað Tango Tango Travel hættir vegna falls Play „Þetta er dýr brandari en það skiptir engu máli“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson ESB-biðstofan og Ísland Sigurður Már Jónsson Nafnlausir heimildarmenn og ESB-umsókn Fleira áhugavert Ný könnun fyrir kosningar í borginni: Tveir turnar Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Árás á orkuinnviði Norðurlanda sögð yfirvofandi Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Atvinnuleysistölur nálgast kreppuástand Tekjur Sýnar yfir sex milljarða Skiptafundur Play í dag Eignir LIVE jukust um 109 milljarða Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Digido fær Ally, Elísu og Margréti ÁTVR í stefnumótun Hjálpa heimilum að ná utan um fjármálin Þorsteinn lætur af störfum sem forstjóri Deloitte Advania kaupir Evolv Þorsteinn lætur af störfum sem forstjóri Deloitte ÁTVR í stefnumótun Hjálpa heimilum að ná utan um fjármálin Digido fær Ally, Elísu og Margréti Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Beint: BHM kynnir greiningu á vinnumarkaðinum Advania kaupir Evolv Tekjur Sýnar yfir sex milljarða Setja 2,5 milljarða í Reykjavik Geothermal Brutu af sér en verða ekki beitt viðurlögum Lækka verð á offitulyfjum Þorsteinn lætur af störfum sem forstjóri Deloitte Nova kaupir Ofar á 4,4 milljarða 2,7 milljarðar króna á dag Advania kaupir Evolv Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Valin besta höfn Norður-Atlantshafsins Atvinnuleysistölur nálgast kreppuástand Brutu af sér en verða ekki beitt viðurlögum Slit samrunaviðræðna bankastjóranum „vonbrigði“ Pistlar » Sigurður Már Jónsson ESB-biðstofan og Ísland Sigurður Már Jónsson Nafnlausir heimildarmenn og ESB-umsókn Fleira áhugavert Óviss um öryggi barna og gagnrýnir Veðurstofuna Út úr myndinni að stýrivextir lækki Hvetja starfsfólk til að yfirgefa Ísrael í dag Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Atvinnuleysistölur nálgast kreppuástand Tekjur Sýnar yfir sex milljarða Skiptafundur Play í dag Eignir LIVE jukust um 109 milljarða Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Digido fær Ally, Elísu og Margréti ÁTVR í stefnumótun Hjálpa heimilum að ná utan um fjármálin Þorsteinn lætur af störfum sem forstjóri Deloitte Advania kaupir Evolv Þorsteinn lætur af störfum sem forstjóri Deloitte ÁTVR í stefnumótun Hjálpa heimilum að ná utan um fjármálin Digido fær Ally, Elísu og Margréti Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Beint: BHM kynnir greiningu á vinnumarkaðinum Advania kaupir Evolv Tekjur Sýnar yfir sex milljarða Setja 2,5 milljarða í Reykjavik Geothermal Brutu af sér en verða ekki beitt viðurlögum Lækka verð á offitulyfjum Þorsteinn lætur af störfum sem forstjóri Deloitte Nova kaupir Ofar á 4,4 milljarða 2,7 milljarðar króna á dag Advania kaupir Evolv Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Valin besta höfn Norður-Atlantshafsins Atvinnuleysistölur nálgast kreppuástand Brutu af sér en verða ekki beitt viðurlögum Slit samrunaviðræðna bankastjóranum „vonbrigði“

Share this article