Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kröfur í þrota­bú Play nema 21 milljarði

Read Full Article →

Kröfu­hafar í þrota­bú lág­gjalda­flug­félagsins Play eru 1.786 talsins og heildar­fjár­hæð krafna nemur 21 milljarði króna, sam­kvæmt upp­lýsingum sem komu fram á fyrsta skipta­fundi búsins en Morgun­blaðið greinir frá. Kröfulýsingar­fresti lauk 2. febrúar og kröfu­skrá lá fyrir 18. febrúar, þar sem af­staða er tekin til krafna í búið. Arnar Þór Stefáns­son skipta­stjóri segir við mbl.is að langstærsti hluti krafnanna falli undir svo­kallaðar al­mennar kröfur og að mjög ósenni­legt sé að eitt­hvað fáist greitt upp í þær. Al­mennar kröfur eru aftar í röðinni en for­gang­skröfur og þar undir falla meðal annars kröfur farþega sem keyptu flug­miða, auk krafna birgja, þjónustu­aðila og annarra. Að sögn skipta­stjóra eru farþega­kröfurnar að veru­legu leyti frá út­lendingum. Í frétt mbl.is kemur fram að margir hafi þurft að lýsa kröfum í búið til að geta fengið endur­greiðslu í gegnum banka í heimalöndum sínum. Gjaldþrot Play hafði víðtæk áhrif: um 400 manns misstu vinnuna og ferðaáætlanir þúsunda farþega fóru í upp­nám. 2,2 milljarða stjórn­valds­sekt vegna ETS-eininga Innan al­mennu krafnanna er einnig 2,2 milljarða króna stjórn­valds­sekt sem Um­hverfis- og orku­stofnun lagði á félagið. Sektin tengist því að Play tókst ekki að kaupa til­tekinn fjölda ETS-eininga (losunar­heimildir í við­skipta­kerfi Evrópu­sam­bandsins) innan til­skilins tíma. Skipta­stjóri segir að félagið hafi átt að tryggja sér ETS-einingar fyrir 1. október 2025, en hafi orðið gjaldþrota áður en til þess kom. Þá hafi sektin fallið á félagið og þar með þrota­búið. Að hans sögn er sektin jafn­framt mun hærri en sá kostnaður sem hefði fallið til við kaup á ETS-einingunum. Veðkröfur upp á 2,8 milljarða Skipta­stjóri greinir jafn­framt frá því að í búinu séu veðkröfur frá skulda­bréfa­eig­endum sem keyptu bréf af félaginu skömmu fyrir gjaldþrotið og tóku veð á móti, sam­tals fyrir 2,8 milljarða króna. Þar á meðal er líf­eyris­sjóðurinn Birta, líkt og áður hefur komið fram í um­fjöllun. Sumum þessara veðkrafna hefur verið hafnað og gætu þær endað fyrir dómstólum. Einnig var veðkröfu flug­vallarþjónustu­fyrir­tækisins Air­port Associa­tes í vara­hluti hafnað af búinu. Áður en til dóms­máls kemur fer slík krafa í svo­kallaðan ágreinings­fasa þar sem reynt er að ná sáttum. Eignir tak­markaðar Spurður um eignastöðu búsins segir skipta­stjóri að vinna við að ná fram fjár­munum gangi „ágæt­lega“ en eignir séu þó ekki miklar. Helstu verðmæti séu ábyrgðir sem ekki var gengið að, til dæmis hand­veð­settir reikningar í Arion banka og vextir, auk trygginga sem félagið lagði fram víða er­lendis, m.a. á flug­völlum, sem nú sé unnið að því að fá endur­greiddar. Sala á lausafé hefur einnig gengið vel, þar á meðal hús­gögnum, frystigámi, sölu­varningi, fatnaði, lyftara og öðru. Engar flug­vélar eru hluti af þrota­búinu, þar sem þær voru allar á leigu og hurfu af landinu við gjaldþrotið. Hlut­hafar tapa öllu sínu, eins og lög gera ráð fyrir þegar hluta­félag verður gjaldþrota.

Share this article