Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nýr Kia EV5 frumsýndur á Íslandi

Read Full Article →

Nýr og alrafmagnaður Kia EV5 verður frumsýndur í sýningarsal Kia að Krókhálsi 13 og hjá umboðsaðilum Kia um allt land, þar á meðal í Reykjanesbæ, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi, á morgun, 28. febrúar. EV5 kemur með allt að 530 km drægni og er einnig væntanlegur fjórhjóladrifinn. Bíllinn er hannaður til að gera hverja ferð bæði ánægjulegri og öruggari með nýjustu akstursaðstoðarkerfum Kia. Nýr Kia EV5 er útbúinn nýjasta ccNC-leiðsögukerfi Kia og inniheldur meðal annars þrískiptan Panoramic Wide Display skjá. Þar sameinast 12,3 tommu mælaborð, 12,3 tommu margmiðlunarskjár og 5,3 tommu skjár þar sem hægt er að stilla hitastig og loftræstingu í bílnum. Sjá einnig Kia kynnir þrjá nýja rafbíla „EV5 er bæði góð og mikilvæg viðbót við rafmagnað úrval hér á landi því hann er í vinsælasta stærðarflokki okkar Íslendinga. EV5 hentar vel fyrir íslenskar aðstæður enda með góða veghæð ásamt rúmgóðu innanrými fyrir alla fjölskylduna,” segir Kristmann F. Dagsson, framkvæmdastjóri sölusviðs hjá Bílaumboðinu Öskju. Farþegarýmið kemur vel til móts við praktískar þarfir. Aftursætin má leggja alveg niður og þannig hámarka farangursrýmið, sem nær allt að tveggja metra lengd. Aðrir skipulagseiginleikar eins og skúffulaga geymslurými í miðjustokki gera EV5 tilvalinn fyrir bæði borgarakstur og lengri ferðalög. EV5 er búinn háþróaðri aflrás og 81,4 kWh rafhlöðu, sem skilar áreiðanlegri drægni og hagkvæmum akstri. Hægt er að velja úr þremur útfærslum: Air, Earth og GT-Line. EV5 kemur einnig með V2L tækni (Vehicle-To-Load) sem gerir bílnum kleift að sjá öðrum raftækjum fyrir hleðslu. Verðmiðinn er frá 7.690.777 krónum með rafbílastyrk og er fullt verð fyrir hinn nýja rafbíl 8.190.777 krónur.

Share this article