Nú nýlega bættist EV4 í hópinn og ber hann mörg ættareinkenni, ef svo má kalla, með nýlegum Kia-rafbílum en nær á skemmtilegan hátt að feta sína eigin leið í hönnun. Að einhverju leyti minna ljósin að framan á EV4 á Batmobile í léttu útfærslunni. Það er það skemmtilega við hönnunina hjá Kia að hún kemur alltaf á óvart. EV4 kemur í tveimur útgáfum, sem hlaðbakur og einnig í Fastback-útgáfu, sem er með meira aflíðandi þak og 30 cm lengri. Þá kemur hann í þremur útfærslum, Air, Earth og GTLine. Allir eru þeir framhjóladrifnir með sömu stærð af rafhlöðu, 81,4 kWh. EV4 er 204 hestöfl og hröðun hans 7,7 frá 0-100 km/klst. Mælaborðið í EV4 er skemmtilega hannað, þar sem þrír skjáir mynda eina samfellda heild, alls 30“ snertiskjáborð sem samanstendur af 12,3“, 5,3“ og öðrum 12,3“ skjá sem mynda svokallaðan connected car Navigation Cockpit (ccNC). Nánar er fjallað um bílinn í Bílablaði Viðskiptablaðsins . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .