Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segir varaflugvelli vera þjóðaröryggismál

  • What: Icelandic airport security system criticized as inadequate
  • Impact: Concerns raised about the security of Iceland's airport infrastructure
Read Full Article →

Innlent | mbl | 27.2.2026 | 20:10 Segir varaflugvelli vera þjóðaröryggismál „Þetta er sögulegur dagur í flugsögunni á Íslandi. Það voru 16 vélar, þar af 15 frá Icelandair, sem urðu að lenda á varavöllunum,“ segir Njáll. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Eggert Jóhannesson Magnea Marín Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Höfum öll eitthvað fram að færa Ætla má að álag á Ísland sem gistiþjóð aukist Hálf-íslenskur hermaður sinnir loftrýmisgæslunni Ágætt að verið sé að efla samskipti ríkjanna Ísland ekki undanskilið ógnum í Evrópu » Fleiri tengdar fréttir Varaflugvallakerfi Íslands verður að vera betur undirbúið með tilliti til öryggis og varnarmála landsins. Til að mynda eru birgðir af flugvélaeldsneyti mjög takmarkaðar bæði á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli. Njáll Trausti Friðberts­son þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins segir þetta í samtali við mbl.is en hann var formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins í átta ár og er einnig fyrrverandi flugumferðarstjóri á Akureyrarflugvelli. „Það er eitt af því sem menn hljóta að hafa lært af gærdeginum,“ segir hann og vísar til þess að 15 vélar Icelandair sem áttu að lenda í Keflavík urðu að lenda á flugvöllunum í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum. Slík tilfelli séu ástæða þess að hann hafi talað fyrir því í pólitíkinni að byggja upp varaflugvellina. Frétt af mbl.is Algjört þrekvirki hjá starfsfólki Flughlaðið á Akureyrarflugvelli hafi nýlega verið stækkað en nú sé forgangsmál að hefja framkvæmdir við akstursbraut á Egilsstaðaflugvelli og ljúka því verkefni sem fyrst. Stóra verkefnið sé þó að styrkja kerfið í heild sinni og getu þess til koma til móts við stöðugt vaxandi flugumferð þar sem Reykjavíkurflugvöllur gegni mikilvægu hlutverki sem varaflugvöllur og í alþjóðaflugvallakerfi landsins. Sjaldgæf sjón á Akureyrarflugvelli. Átta vélar Icelandair biðu eftir að komast í loftið. Ljósmynd/Gylfi Gylfason Líkir varaflugvöllum við bílbelti „Þetta er sögulegur dagur í flugsögunni á Íslandi. Það voru 16 vélar, þar af 15 frá Icelandair, sem urðu að lenda á varavöllunum. Ef við skoðum þetta í samhengi þá höfum við ekki séð svona atvik áður, með þetta mörgum vélum,“ segir Njáll. Öll flug til og frá landinu séu undirbúin með varaflugvöllum í flugplaninu. „En það var bara þessi fjöldi véla sem var sérstakt við þetta tilfelli, hvað þetta var stórt í sniðum. Þetta sýnir mikilvægi þess að varaflugvallakerfið sé til staðar og geti sinnt hlutverki sínu, alþjóðaflugvallakerfi landsins sé sterkt,“ segir hann enn fremur og líkir varaflugvöllunum við bílbelti – fólk átti sig almennt ekki á mikilvægi þess fyrr en það þarf á því að halda. Frétt af mbl.is Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Frétt af mbl.is „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Flugumferð sem snýr að varnar- og öryggismálum „Í dag eru meira eða minna allar eldsneytisbirgðirnar geymdar í Helguvík á Reykjanesinu. Það er mjög takmarkað magn sem er annars staðar á landinu,“ heldur Njáll áfram. „Til dæmis það sem er notað á Reykjavíkurflugvelli, það kemur með tankbílum frá Helguvík til Reykjavíkur og það sama á við um Akureyri og Egilsstaði. Þetta er klárlega forgangsmál. Vélar verða að geta sótt eldsneyti ef það þarf að nota varaflugvöll – eða einhver önnur not,“ segir hann og vísar til öryggis- og varnarmála Íslands. „Það er bara hluti af öryggismálum í landinu að það sé eldsneyti í einhverju teljanlegu magni á fleiri stöðum en bara í Helguvík. Raunar er þetta hluti af þjóðaröryggismálum Íslendinga. Þetta sem gerðist í gær er risastórt. Þetta snýst allt um að viðhalda flugöryggi og vera með öfluga innviði til að sinna þessu hlutverki í aðstæðum eins og sköpuðust í gær. Þannig er þetta bara mjög mikilvægur þáttur í heildarmyndinni. Varaflugvellirnir eru líka fyrir flugumferð sem snýr að varnar- og öryggismálum, hér í Atlantshafinu, sem venjulega lendir í Keflavík en þarf líka á varaflugvöllum að halda annars staðar ef eitthvað kemur upp á.“ Frétt af mbl.is Síðustu vélarnar í loftið í nótt Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Höfum öll eitthvað fram að færa Ætla má að álag á Ísland sem gistiþjóð aukist Hálf-íslenskur hermaður sinnir loftrýmisgæslunni Ágætt að verið sé að efla samskipti ríkjanna Ísland ekki undanskilið ógnum í Evrópu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kalla á gamlar hetjur fyrir bikarúrslitaleikinn Ísland - Litháen, staðan er 43:44 Segir varaflugvelli vera þjóðaröryggismál Kínverskir ferðamenn sagðir erfiðastir á Íslandi Meiðslin elta landsliðsmanninn Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Í raun verið í kreppuverðbólgu í fjögur ár Fyrsta þyrluskoðun sinnar tegundar Fjöldi útkalla: Strætó fór út af á Holtavörðuheiði Myndir: „Jaðrar við ofbeldi gagnvart nemendunum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf 420 milljónir fyrir Toppstöðina Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Fólk flutt sjóleiðina eftir að vegurinn varð ófær Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Nýjast á mbl.is » Kalla á gamlar hetjur fyrir bikarúrslitaleikinn Ísland - Litháen, staðan er 43:44 Segir varaflugvelli vera þjóðaröryggismál Kínverskir ferðamenn sagðir erfiðastir á Íslandi Meiðslin elta landsliðsmanninn Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nýr verktaki fenginn varðandi Ölduselsskóla Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Út úr myndinni að stýrivextir lækki Útséð um að vaxtalækkunarferli haldi áfram Mest lesið Í gær Í vikunni Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf 420 milljónir fyrir Toppstöðina Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Fólk flutt sjóleiðina eftir að vegurinn varð ófær Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál

Share this article