Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Færa öryggis­leitina út fyrir flug­völlinn

  • What: TSA tests pre-boarding security screening in Massachusetts
  • Impact: Passengers may experience new security procedures before reaching airports
Read Full Article →

Flugöryggisstofnun Bandaríkjanna, TSA, hefur sett í gang tilraunaverkefni þar sem farþegar geta farið í gegnum öryggisleit áður en þeir mæta á flugvöllinn. Á vef WSJ segir að verkefnið muni byrja við alþjóðaflugvöllinn í Boston. Frá og með næsta mánuði geta farþegar sem fljúga frá Boston Logan-flugvellinum farið í gegnum öryggisleit í Framingham í Massachusetts. Að lokinni öryggisleit verða farþegarnir svo fluttir með rútu til flugvallarins í 40 kílómetra fjarlægð, þar sem þeim verður hleypt út hinum megin við öryggishliðin. Sjá einnig Flugfélögin kalla eftir tryggingu launagreiðslna Tilgangur verkefnisins er að dreifa álaginu á flugvöllum og munu farþegar fá að komast hjá troðnum bílastæðum, mannmergð við aðkomu flugvallarins og löngum biðröðum við innritunarborð. Til að byrja með verður þessi valkostur aðeins í boði fyrir farþega Delta Air Lines og JetBlue Airways en flugöryggisyfirvöld vona að verkefnið muni bráðum ná til fleiri bandarískra flugvalla.

Share this article