Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Samrunaæði bandarískra flugfélaga

Read Full Article →

Umræður í tengslum við samruna og yfirtökur innan bandaríska fluggeirans hafa færst í aukana undanfarnar vikur. Hækkandi rekstrarkostnaður og minni afkoma hafa fengið marga stjórnendur, ásamt Donald Trump, til að líta á samruna sem mögulega lausn. Á vef New York Times segir að fjölmörg minni flugfélög glími við mikla erfiðleika á meðan fáein stór félög hafi náð að skila miklum hagnaði með því að höfða til tekjuhærri farþega. Bandarísk stjórnvöld hafa sýnt fram á aukinn vilja til að heimila samruna og yfirtökur innan geirans en sú afstaða hefur vakið gagnrýni meðal neytendasamtaka sem óttast að minnkandi samkeppni muni leiða til dýrari fargjalda. Sjá einnig Nálgast sam­komu­lag um björgunarfjármögnun Nýlega fóru vangaveltur af stað um mögulegan samruna milli United Airlines og American Airlines en slíkur samruni myndi skapa risastórt flugfélag sem sæi um 40% allra flugferða í Bandaríkjunum. Þróunin endurspeglar bæði misvægi innan geirans og líka þá erfiðleika sem utanaðkomandi áhrif hafa haft á flugfélög undanfarin ár. Þrátt fyrir aukinn ferðavilja eftir Covid áttu mörg flugfélög erfitt með að ná aftur fyrri styrkleika. Eftir innrás Rússa í Úkraínu lokaðist einnig lofthelgi yfir Rússland sem leiddi til lengri flugferða og hækkandi kostnaðar. Átökin í Miðausturlöndunum hafa gert stöðuna enn erfiðari og hefur eldsneytisverð rúmlega tvöfaldast í verði. Sérfræðingar telja nú að frekari samþjöppun sé líkleg á næstu misserum þar sem mörg flugfélög munu ekki ná að rétta úr kútnum miðað við núverandi aðstæður.

Share this article