United Airlines hefur ákveðið að hætta við að reyna við kaup á samkeppnisaðila sínum American Airlines, en þau hefðu falið í sér samruna á tveimur af stærstu flugfélögum Bandaríkjanna. WSJ greinir frá. American Airlines tilkynnti þann 17. apríl sl. að félagið ætti ekki í né hefði áhuga á viðræðum við United um mögulegan samruna. Tilkynningin var birt í kjölfar þess að greint var frá því að Scott Kirby, forstjóri United, hefði borið áhuga United á slíkum samruna undir Donald Trump Bandaríkjaforseta. Kirby sagði í dag að United væri ekki lengur að eltast við samruna við American, einkum þar sem síðarnefnda félagið væri ekki áhugasamt. Í ljósi opinberrar andstöðu American yrði samruni félaganna „ekki á dagskrá í fyrirsjáanlegri framtíð“. Hann hélt því fram að sameinað félag gæti aukið þjónustuframboð sitt alþjóðlega og til smærri áfangastaða. Samruninn hefði að hans mati skapað verðmæti fyrir viðskiptavini félagsins með því að auka framboð sæta á almennu farrými og gera félaginu betur kleift að keppa við erlend flugfélög. Kirby, sem hefur stýrt United frá árinu 2020, færði einnig rök fyrir því að samruninn myndi styrkja bandaríska hagkerfið en að hans sögn myndi hann skapa tugþúsundir starfa. Hann sagði að þörf sameinaðs félags á nýjum þotum hefði stutt við framleiðslugreinar í Bandaríkjunum. Kirby bjóst við að æðstu embættismenn Bandaríkjanna yrðu með efasemdir um samrunann. Hann hélt því þó fram að samruninn hefði verið ólíkur öðrum hugmyndum um samruna flugfélaga þar sem áformin hans fólu í sér áherslu á vöxt frekar en niðurskurð. „Þrátt fyrir að það hefði augljóslega þurft að draga úr framboði á ákveðnum innlendum mörkuðum, þá tel ég að eftirlitsaðilar hefðu samþykkt viðskiptin þar sem þeir hefðu séð fram á ávinning fyrir viðskiptavini, starfsfólk sameinaðs félags og samfélög víðs vegar um landið um allan heim.“ Sem fyrr segir greindi Bloomberg fyrr í mánuðinum frá því að Kirby hefði borið hugmynd um samruna félaganna undir Trump. Í kjölfar þess að fréttin var birt hafnaði American fljótlega því að félögin ættu í viðræðum og hópur þingmanna lýsti áhyggjum af áhrifum slíks samruna á ferðamenn. Trump sjálfur sagði í viðtali við CNBC í síðustu viku að hann sé ekki hrifinn af hugmyndinni um samruna félaganna. Á bandaríska flugmarkaðnum eru fjögur flugfélög langstærst, en auk American og United eru það Delta Air Lines og Southwest Airliens. Scott Kirby hefur verið forstjóri United Airlines frá árinu 2020. © EPA (EPA)