Ríkisstjórn Donalds Trumps er að nálægt því að samþykkja björgunarfjármögnun fyrir flugfélagið Spirit Airlines. Samkvæmt heimildarmönnum The Wall Street Journa l er verið að ræða um að bandaríska ríkið láni lággjaldaflugfélaginu allt að 500 milljónir dala, eða rúmlega 60 milljarða króna. Í staðinn fái ríkið áskriftarréttindi (e. warrants) sem gætu fært því stóran hlut í Spirit. Samgönguráðuneytið og viðskiptaráðuneytið koma að viðræðunum, sem standa enn yfir. Áréttað er að skilmálar fyrirhugaðs samnings gætu enn tekið breytingum. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði blaðamönnum í gær að hann hefði áhyggjur af því að 14 þúsund störf gætu horfið ef Spirit, sem á í fjárhagsvanda, verður gjaldþrota. „Spirit er í vandræðum,“ sagði Trump. „Kannski ætti alríkisstjórnin að hjálpa þeim.“ Spirit sótti um greiðslustöðvun í ágúst síðastliðnum eftir að fyrra greiðslustöðvunarferli félagsins á seinni árshelmingi 2024 tókst ekki að leysa úr fjárhagsvanda félagsins. Rekstur lággjaldaflugfélaga hefur verið krefjandi um árabil, þar sem stærri keppinautar á borð við Delta Air Lines, United Airlines og American Airlines hafa boðið sín eigin Economy-fargjöld á hagstæðu verði, á framandi áfangastaði þar sem neytendum stendur einnig til boða að velja dýrari valkosti.