Bandaríska lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines er nú í viðræðum við bandarísk stjórnvöld um mögulega fjárhagsaðstoð en félagið glímir við alvarlega rekstrarerfiðleika. Á vef WSJ segir að stjórnvöld séu meðal annars að íhuga beina ríkisfjárfestingu í flugfélaginu. Donald Trump tilkynnti í dag að hann hefði áhyggjur af þeim 14.000 störfum sem gætu runnið út í sandinn ef flugfélagið færi í gjaldþrot og gaf í skyn að stjórnvöld ættu að skoða leiðir til að koma því til bjargar. Spirit Airlines sótti um greiðslustöðvun í ágúst í fyrra eftir árslanga árangurslausa endurskipulagningarherferð. Flugfélagið, sem er með höfuðstöðvar í Flórída, hefur þá reynt að styðja við reksturinn með því að einbeita sér frekar að lykilborgum innan ríkisins. Sjá einnig Spirit Airways sendir þriðjung flugþjóna í lausráðningu Fjölmörg lággjaldaflugfélög í Bandaríkjunum hafa um árabil staðið undir auknum þrýstingi frá stærri flugfélögum á borð við Delta, United og American Airlines, sem hafa byrjað að bjóða upp á sambærileg fargjöld með betri þjónustu. Aðstæður hafa þar að auki versnað eftir að átök hófust í Íran sem leiddu til tvöföldunar á hækkun eldsneytisverðs á skömmum tíma. Greiningardeild JPMorgan hefur til að mynda bent á að kostnaður Spirit gæti aukist um 360 milljónir dala ef verðið helst óbreytt út árið.