Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Forstjóri Air India stígur til hliðar

Read Full Article →

Campbell Wilson, forstjóri Air India, hefur ákveðið að láta af störfum, ári áður en til stóð, á sama tíma og flugfélagið glímir við miklar áskoranir, þar á meðal taprekstur. Á vef BBC segir að hann muni gegna stöðunni áfram þar til annar forstjóri hefur verið ráðinn. Indverska flugfélagið hefur undanfarið glímt við fjölmargar áskoranir, þar á meðal banvænt flugslys á síðasta ári sem varð 260 manns að bana. Wilson, sem er jafnframt fyrrum framkvæmdastjóri Singapore Airlines, var ráðinn til Air India árið 2022 til að leiða viðsnúning hjá félaginu eftir að Tata Group keypti Air India af indversku ríkisstjórninni. Sjá einnig Fyrrum forstjóri British Airways ráðinn forstjóri IndiGo Undir hans leiðsögn byrjaði Air India að endurnýja flugflota sinn og endurskipuleggja rekstur en flugfélagið átti í töluverðum erfiðleikum með öryggismál. Air India hafði þar að auki glímt við mikla vanrækslu á meðan það var í eigu ríkisins. Á fjárhagsárinu 2024-2025 tapaði Air India og lágfargjaldaflugfélag innan sömu samstæðu samtals 98 milljörðum rúpía, eða um einum milljarði dala.

Share this article