Indverska lággjaldaflugfélagið IndiGo hefur ráðið Willie Walsh, fyrrum forstjóra British Airways og núverandi framkvæmdastjóra Alþjóðasamtaka flugfélaga (IATA), sem forstjóra félagsins. Á vef Reuters segir að Walsh muni láta af störfum hjá IATA þann 31. júlí nk. og er gert ráð fyrir að hann taki við forstjórastöðunni hjá IndiGo í byrjun ágúst. Ráðning Walsh kemur aðeins nokkrum vikum eftir afsögn Pieter Elbers en IndiGo hefur meðal annars verið gagnrýnt fyrir ófullnægjandi vinnubrögð tengd hvíldartíma flugmanna, sem leiddu til þess að fjölda flugferða var aflýst síðasta desember. Sjá einnig Afkomuspá flugfélaga versnar IndiGo þurfti að aflýsa fleiri en 4.500 flugferðum og reyndist uppákoman vera stærsta krísa í 20 ára sögu flugfélagsins. Rahul Bhatia, meðstofnandi og framkvæmdastjóri IndiGo, tók tímabundið við sem forstjóri eftir brotthvarf Elbers. Walsh kemur til IndiGo með áratugalanga reynslu úr fluggeiranum. Hann hóf feril sinn sem flugnemi hjá Aer Lingus árið 1979 og varð síðan forstjóri írska flugfélagsins árið 2001. Hann gegndi síðan stöðu forstjóra British Airways frá 2005 og hefur verið framkvæmdastjóri IATA síðan í apríl 2021.