Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Telur aug­ljóst að annað líkan hefði ekki virkað betur

Read Full Article →

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, ræddi um viðskiptalíkan flugfélagsins á aðalfundi þess í dag og virtist þar svara greinarskrifum Egils Almars Ágústssonar, fyrrverandi forstöðumanns leiðakerfis Icelandair, í Viðskiptablaðinu. Bogi sagði viðskiptalíkan og leiðakerfi Icelandair hafa ítrekað sýnt styrk sinn við krefjandi aðstæður. Hann nefndi þar ósjálfbæra samkeppni, kyrrsetningu MAX-vélanna, Covid-faraldurinn og mun meiri hækkun raunlauna hér en í samkeppnislöndum. Þrátt fyrir þessar áskoranir hafi félagið náð að styrkja markaðsstöðu sína og efla tengingar Íslands við umheiminn. Það sé ekki tilviljun heldur liggi þar að að baki sterkt viðskiptalíkan, öflugt leiðakerfi og framúrskarandi starfsfólk. „Umræða hefur verið um hvort Icelandair starfi eftir réttu viðskiptalíkani. Það má líka spyrja hvort annað líkan, til dæmis með hærra þjónustustigi, fókus á færri markaði, færri sætum um borð og þar með hærri einingakostnaði, hefði skilað okkur jafn vel í gegnum þær aðstæður sem við höfum staðið frammi fyrir. Við teljum augljóst að svo sé ekki.“ Bogi sagði Icelandair endurmeta reglulega vöruna sína, leiðakerfið og stefnu félagsins. Sjá einnig Arðsemi í forgangi og telur komið að vendipunkti Egill Almar Ágústsson, fyrrverandi forstöðumaður leiðakerfis Icelandair, gagnrýndi í grein í Viðskiptablaðinu í lok febrúar, að Icelandair hafi ekki fetað meira í fótspor erlendu samkeppnisaðila sinna þegar kemur að vöruþróun í viðskiptafarrými, t.d. með svokölluð „Lie-Flat“ sæti þar sem farþeginn getur legið flatt. Sjá einnig Saga Class innan arðbærasta hluta markaðarins Bogi svaraði þessari gagnrýni í viðtali við Viðskiptablaðið og sagði m.a. að Icelandair reki allt annað viðskiptalíkan en félögin sem fljúga beint yfir Norður-Atlatnshafið. Mikilvægt væri að hafa í huga að Icelandair noti sömu vélarnar bæði í langflug til Norður-Ameríku og fyrir stuttu leggina til Evrópu. Egill Almar svaraði Boga í aðsendri grein í Viðskiptablaðinu sem kom út fyrir viku og lagði þar til að Icelandair myndi búa til „arðbærnisvél“ sem borgi óhagkvæmni í styttri flugferðum til Evrópu með viðskiptafarrýmisfarþegum yfir Atlantshafið. Sjá einnig Ein­föld lausn fyrir Icelandair Veruleg tækifæri að geta flogið lengra í vestur Á aðalfundinum í dag tók Bogi einnig fyrir umræðu um samkeppnisstöðu Keflavíkurflugvallar sem tengimiðstöðvar nú þegar flugfélög beggja vegna Atlantshafsins taka inn langdrægar mjóþotur fyrir beint flug yfir hafið. „Að okkar mati felast í þeirri þróun veruleg tækifæri fyrir Icelandair því við munum hér eftir sem hingað til geta flogið hagkvæmustu vélunum lengra í vestur en keppinautarnir austan megin, og lengra í austur en keppinautarnir vestanhafs. Það eru þrjú ár þar til við tökum við fyrstu Airbus 321 XLR vélinni sem mun skapa veruleg tækifæri til þróunar leiðakerfisins. Við getum þá með mjög hagkvæmum hætti tengt áfangstaði í t.d. Kaliforníu, Texas og Arizona við okkar gríðarlega sterka leiðakerfi, auk nýrra tækifæra austan hafs. Þetta eru tækifæri sem ekki eru til staðar fyrir flugfélög fyrir austan eða vestan okkur.“

Share this article