- What: Analysis of Icelandair's market position
- Impact: Industry perspective on airline operations
Icelandair keppir á þremur mismunandi mörkuðum eða tengimarkaðnum yfir Atlantshafið, farþegum til Íslands og Íslendingum á leið út í heim. Þetta kom fram í viðtali við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair, sem birtist á vef Viðskiptablaðsins á fimmtudaginn í síðustu viku. Sjá einnig Saga Class innan arðbærasta hluta markaðarins Viðtalið við Boga Nils kom í kjölfar greinar, sem Egill Almar Ágústsson, fyrrverandi forstöðumaður leiðakerfis Icelandair, ritaði í Viðskiptablaðið í síðustu viku. Nú hefur Egill Almar, sem er einnig fyrrverandi erlendur ráðgjafi Boston Consulting Group, skrifað aðra grein en hún birtist í Viðskiptablaðinu, sem var að koma út. Yfirskrift greinarinnar er „ Íslensk flugfélög á röngum enda markaðarins ". „Icelandair er á þremur mörkuðum en hámarkar ekki tekjurnar af neinum þeirra eins og samkeppnisaðilar gera og hefur ekki grætt neitt síðustu 10 ár, jafnvel ef litið er framhjá COVID-árunum,“ skrifar Egill Almar. „Ég velti því fyrir mér hvort það sé ekki kominn tími til að velja eitt viðskiptamódel og einbeita sér að því. Að búa til arðbærnisvél sem borgar óhagkvæmni í styttri flugferðum til Evrópu með viðskiptafarrýmisfarþegum yfir Atlantshafið, farþegum sem þurfa að kaupa sína miða á fákeppnismarkaði og skila meiri tekjum inn til félagsins en nokkru sinni áður. Það yrðu færri sæti í stuttum flugferðum til Evrópu, en það er ansi einfalt að sýna fram á að Evrópuflug með færri sætum myndi skapa meiri tekjur en það gerir í dag, ef það eru tengifarþegar um borð af þessum fákeppnismarkaði.“ Einfaldari lausn Egill Almar segir í greininni að lausnin sé í raun einföld. „Icelandair er með um 35 vélar. Ef fimm þeirra væru stilltar af fyrir Evrópuflug án viðskiptafarrýmis sem breytist í rúm væru þær til staðar fyrir flug utan tengibankans. Jafnframt tekur langan tíma að breyta heilum flota, þannig að spurningunni þarf ekki að svara fyrr en það eru komin gögn sem sýna nákvæmlega hvað skuli gera. En ef ekkert er gert breytist ekkert. Við erum búin að sjá að erlendu félögin eru í markaðsráðandi stöðu á Norður-Atlantshafi og með markaðssamráði halda þau verði háu í premium (viðskiptafarrými og premium economy) og lágu í economy. Þar er gífurlegt tækifæri fyrir Ísland, því tengiflug í gegnum Ísland er á þessum sama markaði og erlendu félögin eru búin að gera að fákeppnismarkaði með háu verði.“ „Framboð frá Íslandi er ekki af þeirri stærðargráðu að það breyti því jafnvægi. Það hlýtur að vera draumur hvers forstjóra að reka fyrirtæki á fákeppnismarkaði, þar sem stórir aðilar halda verði uppi, og þurfa ekki að gera neitt nema að selja sömu vöru og hinir, sem í þessu tilviki er premium-flugsæti.“ Grein Egils Almars birtist í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið hana í heild hér .