Fyrrverandi forstöðumaður leiðakerfis Icelandair furðar sig á því að flugfélagið hafi ekki lagt meiri áherslu á viðskiptafarrými (e. premium economy), líkt og stóru bandarísku flugfélögin sem fljúga yfir Norður-Atlantshafið – arðbærasta flugmarkaði í heimi síðustu 15 árin að hans sögn. Egill Almar Ágústsson, fyrrverandi ráðgjafi hjá Boston Consulting Group, segir í aðsendri grein í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun að stærsta spurningin í íslenskum flugrekstri hljóti að vera af hverju stóru hafa flugfélögin á Atlantshafinu grætt þúsundir milljarða á arðbærasta flugmarkaði í heimi, en íslensk flugfélög hafa annaðhvort farið á hausinn eða ekki grætt neitt á sama markaði. „Sagan af Wow, Play, Norwegian og Icelandair síðustu 10-15 ár segir okkur að minnsta kosti þetta: það er líklega ekki hægt að græða á því að keppa í almennu farrými yfir Norður-Atlantshaf. En það þýðir ekki að það sé ekki grundvöllur fyrir arðbærum flugrekstri á Íslandi.“ Egill Almar segir ekki óalgengt að stóru flugfélögin í Bandaríkjunum og Evrópu hafi tekið það fram í uppgjörum sínum að Norður-Atlantshafið hafi gefið þeim 20%+ hagnaðarhlutfall „sem er svo gott sem óþekkt arðbærni í flugheiminum“. „Norður-Atlantshafið varð arðbærasti flugmarkaðurinn í heimi að stórum hluta vegna vöruþróunar í viðskiptafarrými.“ Gildran sem Play og Wow féllu í? Í greininni fjallar Egill Almar einnig um hvernig stóru flugfélögin brugðust við innreið ýmissa lágfargjaldaflugfélaga á markaðinn yfir Norður-Atlantshafið. Þau hafi t.d. þrengt almennt farrými og stækkað viðskiptafarrýmin. „Nú er það orðið þannig að stærstu flugfélög á Atlantshafinu fljúga með vélar sem nýta oft um 70% af gólfplássinu í premium-farrými og restina, 30%, í almennt farrými.“ Hann veltir fyrir sér afleiðingum þessarar þróunar fyrir íslenskan flugrekstur og þá hvort „premium-markaðurinn“ sé það arðbær fyrir samkeppnisaðila á Norður-Atlantshafi að viðkomandi flugfélög geti selt almennt farrými undir kostnaðarverði og samt verið virkilega arðbær. „Það er virkilega erfitt að keppa við markað sem þarf ekki að sýna hagnað af vörunni, almennu farrými, því hann græðir svo mikið af restinni, Premium. Ef þetta er rétt er það gildran sem íslensk flugfélög hafa gengið í, hvert á fætur öðru. Wow og Play seldu bara almennt farrými. Þau voru að keppa á verði í þeim vörum sem samkeppnin þurfti ekki að hámarka hagnað af. Þau fóru á hausinn.“ Hvað Icelandair varðar þá segir hann að vélar félagsins séu með u.þ.b. 10% Saga Class sæti og 90% almennt farrými. „Það hefur ekkert félag getað sýnt fram á að það sé hægt að græða á Norður-Atlantshafi með því að selja aðallega almennt farrými, í samkeppni við félög sem þurfa ekki að græða af almennu farrými og hafa hag af því að selja nægilega ódýrt til að halda samkeppni frá Wow, Play, Icelandair og Norwegian niðri. Lægri kostnaður mun ekki leysa það.“ Hann varpar þeirri spurningu fyrir hluthafa Icelandair í aðdraganda aðalfundar þann 12. mars nk. hvort það sé kominn tími til að prófa nýtt viðskiptalíkan. „Ef viðskiptamódelið er ekki að virka, af hverju ekki að prófa það sem hefur gengið hjá öðrum? Sérstaklega í ljósi þess að það er arðbærasta viðskiptamódel í heiminum í dag.“ Áskrifendur geta nálgast grein Egils Almars í heild sinni hér og annað efni úr Viðskiptablaði vikunnar hér .