Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Wizz orðið mest skortselda félagið

Read Full Article →

Skortstaða með hlutabréf Wizz Air hefur stækkað um meira en helming í mánuðinum eftir að ungverska lágfargjaldaflugfélagið varaði við‏ því að áhrif stríðsins í Íran myndi líklega þurrka út hagnað þess. Financial Times greinir frá. Skortstaða með hlutabréf Wizz hefur aukist úr 8,5% í 13,5% sem hlutfall af útgefnu hlutafé félagsins frá byrjun mars. Lágfargjaldaflugfélagið hefur því tekið fram úr bakarískeðjunni Greggs sem skortseldasta félag kauphallarinnar í London. Wizz tilkynnti þann 5. mars að það geri ráð fyrir að stríðsátökin í Miðausturlöndum muni hafa neikvæð áhrif á afkomu félagsins upp á 50 milljónir evra, eða sem nemur tæplega 7,3 milljörðum króna, m.a. vegna aflýstra flugferða og hækkunar á eldsneytisverði. Vogunarsjóðirnir Citadel Advisor, DE Shaw og WorldQuant eru meðal fjárfesta sem hafa aukið við skortstöður sínar á síðustu vikum. Hlutabréfaverð Wizz hefur lækkað um meira en 20% frá því að Bandaríkin og Ísrael hófu loftárásir á Íran þann 28. febrúar sl. Gengi félagsins hafði þegar lækkað í ár, m.a. vegna sölu stærsta hluthafans, Indigo Partners, á 10% hlut í flugfélaginu. Skortsalar hafa horft til Wizz um nokkurt skeið. Flugfélagið hefur átt í erfiðleikum með að viðhalda arðsemi í ljósi harðrar samkeppni frá stærri keppinautnum á borð við Ryanair og hækkandi kostnaðar í fluggeiranum. Áður en stríðið í Íran braust út hafði Wizz spáð því að afkoma yfirstandandi fjárhagsárs, sem lýkur 31. mars, verði allt frá 25 milljóna evra hagnaði í 25 milljóna evra tap. Greinandi hjá Barclays bendir á að Wizz hafi verið með minni eldsneytisvarnir en helstu samkeppnisaðilar þess auk þess að Ísrael er stór hluti af leiðakerfi ungverska félagsins.

Share this article